Sæll Yalsamier
Ég vill taka undir það að það er asnalegt að þurfa að taka af okkur yfirhafnir eða taka út stólinn eða opna hurðir fyrir okkur stúlkunum.
Satt best að segja finnst mér það alltaf alveg út í hött, ég kann þetta alveg sjálf.
En það eru nú ekki nema ca 1% af íslendingum sem gerir þetta hvort eð er svo það er bara í góðu.
En ég er ekki að fatta hvert þú ert að fara með öllu þessu ofbeldistali.
“…ekki lemja konur, þótt við eigum að slást…”
HA ?
Veistu það að þeð er ekkert jafn ósexý og óspennandi og leiðinlegt og strákur sem slæst.
Konur vilja EKKI láta slást um sig, eða verja heiður sinn með blóði.
Konur vilja bara láta koma vel fram við sig og ef gaurinn er meira upptekinn af því að vera með macho-stæla og sýna að hann “Á” stelpuna þá er hann ekki að vera góður við hana, heldur bara að hugsa um eigið EGÓ.
Láttu mig vita það - ég var með svona strák í mörg ár - það mátti enginn tala við mig, þá lamdi hann hann í buff !
Rosa gaman eða þannig.
Enda fékk ég nóg og dumpaði honum.
Nú og ef einhver ætlaði að verja heiður minn, púff, frekar vill ég gáfaðann gaur sem kann að labba í burtu með mér, en nefbrotinn gaur inn á slysadeild og með lögguna á hælunum.
Þvílík heimska !
Og ég get LOFAÐ þér að 99% af konum hugsa eins og ég!
Nú svo hitt - langar þig að segja stelpu upp og slá hana í leiðinni ?
Hafa margar stelpur sagt þér upp og slegið þig ? Hvað varstu að gera þeim ?
Ég hef barasta aldrei heyrt um að stelpur segi strákum upp á þennan hátt.
Nú ef þau fara að rífast vegna einhvers og gaurinn er vondur við dömuna þá er séns á að hún slái hann og það er auðvitað ekki fallega gert.
En þú veist að stelpur eru í flestum tilvikum aumari en strákar ?
Svo það væri ekki mikið jafnrétti í því að ef hann myndi slá á móti ? Því hennar löðrungur væri kanski lítið klapp á meðan hans gæti kinnbrotið hana.
Þú lemur ekki stelpu einfaldega eins og þú lemur ekki krakka.
Þær eru líkamlega aumari og þú átt ekki að ráðast á minni mátta.
En þú átt reyndar ekki að lemja neinn ! Það er slæmt fyrir alla, þig, þann sem er laminn og alla vini og ættingja.
Ofbeldi er viðbjóður.
Þú talar um að rétt á að hefna þín á stelpum, eru þær semsagt alltaf að berja þig ?
Hvurslags stelpur þekkir þú eiginlega ?
Hvernig væri að íhuga nýjan kunningjahóp, þar sem ofbeldi er ekki eðlielgur hlutur ? Þannig er það hjá flestum sko !
Nú - og þú átt ekki að hefna þín á þeim - ekki heldur ef þetta væru strákar.
Allavegana ekki með líkamlegum meiðingum.
Það eru til gáfulegri aðferðir til að láta ofbeldi hætta en að berja á móti.
Og kæri vinur - karlmenn sökka ekki - flestir eru alveg yndislegir og frábærir - eins er með stelpur.
En við erum öll einstaklingar fyrst og fremst ekki 2 óvinahópar bleikir og bláir.
Og ef við bara getum hugsað þannig þá væri þetta allt í góðu !<br><br>______________________________________
Ég er að safna undirskriftum fyrir áhugamálið
<font color=“#800000”><b>SAMSÆRISKENNINGAR</b></font>
Sendið mér skilaboð ef þið styðjið það
______________________________________
Kíkið á Hugasíðuna mína :
<a href="
http://kasmir.hugi.is/Lyssia">
http://kasmir.hugi.is/Lyssia</a>
______________________________________
<font color=“#800000”>
The ideals which have always shown before me
and filled me with the joy of living are :
goodness, beauty and truth.
-Albert Einstein
</font>
______________________________________