Ég er að vinna að vef um einelti, sem B.A. verkefni í Bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands.
Ég er að leita að fólki sem hefur lent í einelti, lagt aðra í einelti eða hefur orðið vitni að því, og eru tilbúnir að leyfa mér að birta sögu sína á vefnum, undir dulnefni. Fyllsta trúnaðar er heitið.
Eineltið getur verið ýmis konar, andlegt eða líkamlegt og getur gerst alls staðar, s.s. í skólum, á heimilum, á vinnustöðum o.s.frv.
Ef þið hafið sögu sem þið viljið deila með öðrum á vef sérstaklega tileinkuðum einelti af öllum gerðum, sendið mér póst á:
annaelisdottir27@hotmail.com

p.s. Gaman væri t.d. að heyra um hina nýju tegund eineltis, sem á sér stað með sms sendingum.