Hefur einhver annar en ég séð ógeðslegu
viðbjóðsauglýsingarnar frá Betra Baki. Þær hljóma einhvern
veginn svona: ÞAÐ ER ALLT AÐ VERÐA BRJÁLAÐ,
Framlengjum varnarsamninginn við Ameríku, Amerískir
tilboðsdagar framlengdir til 18. júlí n.k.
Og neðst stendur: VerðSPRENGJA, og “SPRENGJA” með
stóru og rauðu letri. Síðan er mynd af einhverjum
morðingjanum; herþotuflugmanni og stórri herþotu. Þarna
sjáum við viðskiptin á sínu lægsta plani. Ekki aðeins ákveða
þeir að lýsa yfir stuðningi við morðingja, heldur vilja þeir líka
græða á þeim. Þeim sem finnst svona hálfvitaskapur
óviðeigandi og ógeðslegur og, svo ekki sé minnst á, óvirðing
við fórnarlömb Bandaríkjanna úti um allan heim og
aðstandendur þeirra, hvet ég eindregið til að láta í sér heyra á
betrabak@betrabak.is og að sjálfsögðu ætti enginn að skipta
við þetta ógeðslega fyrirtæki.

Takk fyri
F. Trotteville