Vegna fátæktar og óviðunandi lífskjara hér á landi hef ég fundið mér vinnu utanlands. Nemli í Danaveldi sem elskar íslenskt vinnuafl einhverra hluta vegna. Mig langaði bara svona að benda á þetta því ég veit að ungt fólk er að flýja þetta sker eins og rottur frá sökkvandi skipi af því það er ekki hægt að lifa mannsæmandi lífi hérna nema að vera með háskólagráðu….en samt..margir sem eru með háskólagráður lifa sultarlífi hérna. Atvinnulausir og niðurlægðir. En það er sussum ekkert nýtt að Íslendingar séu niðurlægðir….lítið bara á hvernig liðið kýs og það eitt og sér er niðurlæging fyrir hugsandi fólk!
EN allavegana ætla ég að hætta þessu blaðri og halda áfram að pakka niður því ég er farin til fjandans og kem líklega ekki aftur.
Samúðarkveðjur til ykkar hinna
Cat Lady<br><br>Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.