Miðjumenn þurfa að bæta ímynd sína á Íslandi. Miðjumenn verða fyrir stöðugu aðkasti hægri- og vinstrimanna, jafnvel þó þeir séu ekki alvöru miðjumenn, bara Framsóknarmenn.
Talað er í niðrandi tón um “miðjumoð” og slíkt og hin göfuga viska miðjunnar er svívirt og talað er um “málamiðlanir” eins og það væri eitthvað slæmt, og þó alls ekki sé um málamiðlun að ræða heldur fullkominn, skilyrðislausan, öfgafullan trúnað við hinn gullna meðalveg!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!


Það er spurning hvort það er ekki kominn tími fyrir nýjan flokk í íslensk stjórnmál? Flokk sem mun uppræta þá ímynd miðjumannsins sem gerfi miðjumenn eins og “Framsóknarmenn” hafa skapað?!

Flokkur öfgasinnaðra miðjumanna gæti verið svarið!

Flokkur öfgasinnaðra miðjumanna mun berjast gegn og ekki líða hvers konar kommúníska, fasistalega ellegar öfga frjálshyggjuhugsun inn á alþingi!

Flokkur öfgasinnaðra miðjumanna mun berjast gegn hvers kyns öfgum og óskynsemi af fullum krafti!

Flokkur öfgasinnaðra miðjumanna mun berjast gegn hvers konar öfgafullri einkavæðingu og öfgafullum ríkisrekstri!

Flokkur öfgasinnaðra miðjumanna mun berjast gegn hvers konar ofuráherslu á samfélagsmál eða efnahagsmál!

Flokkur öfgasinnaðra miðjumanna mun berjast gegn öfgum í hvívetna!

Flokkur öfgasinnaðra miðjumanna mun innleiða skynsemi, stillingu, yfirvegun, visku og þroska inn í íslensk stjórnmál!

Fyrrverandi framsóknarmenn sem leiðist öfgarnar á þeim bæ eru boðnir sérstaklega velkomnir í flokkinn, allir fyrrverandi kommúnistar eins og margir í samfylkingunni og vinstri grænum, og allir með fasískar ellegar hægri anarkistalegar tilhneigingar eins og margir hægrimenn eru sérstaklega boðnir óvelkomnir!

Vitrir og siðaðir menn, frjálshyggju-velferðarsinnuð-smá íhöld fylgjandi jákvæðum hægfara breytingum, á móti öskrum og ópum og hvers kyns gelgju í fullorðnu fólki, menn stillingar og fágunnar eru boðnir velkomnir til starfa í flokkinn!

Trúum ekki lygum þeirra sem segja að vinstri-hægri kvarðinn sé orðinn úreltur, það eru einkum samfylkingarmenn sem ég hef séð tala þannig hér, og allir vita að einu sinni kommi= alltaf kommi. Gleymum ekki að Ingibjörg og Össur voru bæði kommar, og eflaust með mynd af Mao inn í skáp hjá sér sem þau tilbiðja á nóttunni þegar enginn sér og færa blóm? Svo tala hægrimenn sem þykjast hafa mjög miklar velferðaráherslur líka svona.

Gleymum því ekki að þetta er lygi sem öfgamenn nota til að fela sjónarmið sín! Hægri-vinstri kvarðinn gildir, og á honum er allt dauði og illska nema hinn gullni meðalvegur, vegur gullsins og ljóssins, velferðar og góðs, kærleiksríks, skynsams og öfgalauss samfélags!

Niður með kommmúnista!
Niður með fasista!
Niður með öfgasinnaða frjálshyggju!
Niður með öfgasinnuð íhöld!

Og niður með öfgamenn undir fölskum formerkjum og gerfi miðjumenn eins og Framsóknarflokkinn sem er fullur af ofstopafullum pörupiltum!

Sannir miðjumenn sameinist!

Stofnum fyrsta alvöru “ladies and gentlemen klúbbinn” á Íslandi:

Öfgasinnaða miðjuflokkinn!



Lengi lifi hinn gullni meðalvegur!

Gakk þú á vegi hinnar gullnu miðlungssólar um hádegisbil, miðjuna björtu milli morguns og kvölds, sem er ávallt sama blóðrauða ofbeldið!!!!! Hægri og vinstri er blóðrauð illska, en miðja dags er gullin skær sól!

Fram til nýrrar aldar sannir miðjumenn visku og stillingar!


Það er hádegi miðjunnar!

Það er hádegi miðjunnar!

Það ER hádegi miðjunnar!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Já, það ER!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!