Davíð Oddsson, þessi yndislegi maður, hefur gert landið okkar svo mikið betra en það var. Undir forystu hans hefur hinn yndislegi Sjálfstæðisflokkur veitt feðrum fæðingarorlof til að þeir geti kynnst börnum sínum betur og með þessu hafa Sjálfsstæðismenn sýnt að þeir eru bestu vinir fjölskyldunnar og jafnréttisins og barnanna.

Þið sem eigið hunda eða önnur gæludýr sem þið elskið ættuð að muna að það var Davíð blessaður Oddsson sem gaf hundaleyfi hér í Reykjavíkurborg eftir að sú alvarlega frelsisskerðing og ómenning og svívirða hafði viðgengist að slíkt var bannað lengi.

Það er Sjálfstæðisflokknum að þakka að við getum notið samvista við þessi yndislegu dýr hundana okkar, honum og Guði að sjálfsögðu, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur þjónað á sinn hátt.

Við viljum enga illa valdagráðuga spillta einstaklinga í stað vinar barna og hunda Sjálfstæðisflokksins og hans Davíðs blessaðs.

Svo er Davíð afar trúaður og góður maður, og ég hef heyrt margar fagrar sögur af honum sem fáir vita kannski og öllu því góða sem hann hefur gert fyrir fólk.

Er þetta líkt einhverjum öðrum?
http://www.popularmechanics.com/science/research/2002/12/real_face_jesus/print.phtml