Nú var ég að horfa á fréttir á Stöð 2 áðan. Það var sagt frá því að 12 Palestínumenn hafi verið myrtir þegar Ísraelskir hermenn hafi ráðist inn í Gaza og lent í skotbardaga við menn Hamassamtakanna að sögn Ísraelsmanna. Það var ekki varað við myndum sem kæmu í þessari frétt. Meðal látinni var 2. ára drengur. Þeir sýndu líkið á honum þar sem hann lá í blóði sínu á börum búið að skjóta hann til bana!

Hvers konar fréttaflutningur er þetta? Þetta er það viðbjóðslegasta sem ég hef séð í nokkrum fréttatíma. Þeir á Stöð 2 ættu að taka nær allar virtar fréttastöðvar vestanhafs og í Evrópu sér til fyrirmyndar að sýna ekki ógeðslegar myndir og að mynsta kosti vara við myndum sem fylgja fréttinni!

Sáuð þið þessa frétt og ef svo er hvernig fannst ykkur hún?