Vá ég hef aldrei hlegið jafn mikið og þegar ég heyrpði þetta! Yfirvöld í Flórída eru búnir að breyta nafninu á french fries (frönskum kartöflum) í freedom fries því frakkar neita að sleikja Bush upp og senda hermenn sína í rauðan dauðann til Íraks.

VÁ! fólk í Bandaríkjunum ætti kannski að slaka aðeins á í frelsis skrípaleiknum sínum! Freedom Fries!!! Hvað kemur næst? Freedom burgers, því þjóðverjar styðja ekki stríðið í írak (ein borg í þýskalandi heitir Hamburg og eru hamborgarar skírðir eftir þeirri borg)? En ég tel það nú ólíklegt því ef er tekið mið af almennri landafræðikunnáttu bandaríkjamanna þá held ég að fæstir þeirra viti hvar þýskaland er, hvað þá borg í Þýskalandi (of flókið fyrir þetta ágætisfólk).



Freedom fries….