Skotárásir í Washington Þið hafið eflaust tekið eftir í fréttum undanfarna daga að í Washington keyrir um maður á hvítum sendibíl og skýtur fólk, lögreglan er litlu nær um þessa leyniskyttu og það eina sem það veit um hann er að hann keyrir um á hvítum sendibíl, en svo á lögreglan víst að hafa fundið einhvern tarotspilastokk og blað sem á stóð: ég er guð, við vettvang einnar skotárásinnar. Það virðist ekki vera neinn tilgangur fyrir þessum árásum, og fórnarlömbin valin af handahófi. En ég var að velta einu fyrir mér, hvað ef þetta er einhver frá Ísrael eða Palestínu sem er bara að drepa saklausa borgara af ástæðulausu til að sýna Bandaríkjamönnum hvað er óþægilegt að búa á þessum stöðum og mega búast við árás frá óvinunum á hverri stundu, og hver sem er gæti dáið. Allaveganna, bara smá svona pæling.