Þátttakendur í nýjasta Stóra bróður þættinum, sem er í anda
Survivor, munu eyða næstu vikum í gullfiskabúri. Gullfiskarnir
Tanya, Wanda, Pal og Klaus eru þátttakendur í þættinum The Tank,
eða Búrið sem er nýr þáttur sem norska veffyrirtækið ABC Startsiden
sendir brátt út á netinu. Á heimasíðu þeirra verður hægt að
fylgjast með því hvernig lífi fiskarnir lifa og sjá hver þeirra
plumar sig best. Í hverri viku verður einn fiskur, líkt og í
Survivor, kosinn og þarf hann að yfirgefa búrið. Þann 8. desember
líkur svo keppninni og sá fiskur sem verður eftir fær stærðarinnar
verðlaun. Hérna er svo slóðin: http://www.startsiden.no/tanken/