—————————-
Tekið beint af visir.is
—————————-
Helgispjöll í kirkjugarði
Unnin voru skemmdarverk á 46 til 50 legsteinum og grafreitum í kirkjugarðinum við Suðurgötu í nótt, en á þá höfðu verið krotuð helgispjöll eða ókvæðisorð.

Um röskun á grafhelgi er að ræða og rannsakar lögregla málið. Skemmdarvargarnir hafa notað úðabrúsa til verksins, en ekki er vitað til þess að áður hafi verið krotað með slíkum hætti á legsteina í garðinum.

Starfsmaður hjá kirkjugarðinum sagði að aðkoman hefði verið ljót, en m.a. er búið að úða á stein Jóns Sigurðssonar.

—————————-


Þetta eru mín rök fyrir því að allir þeir sem teknir eru með sprey brúsa á sér eigi að vera hengdir upp á Arnarhól öðrum til viðvörunuar. Ég hef ekkert á móti flottum veggmyndum en þetta er eins langt frá því sem hugsast getur. Eru krakkar í dag fávitar ? Eru krakkar í dag án allrar samvisku ? Hefur þetta eitthvað með verkafall kennara að gera ?
Spirou Svalsson