Ég er á þeirri skoðun að stjórnvöld Bandaríkjanna styðja við bakið á Ísraelsmönnum frekar en Palestínumönnum. Þeir hafa líka hagsmuni að gæti því að mikill hluti þegna þeirra eru Gyðingar.
En er þetta eitthvað meira en hatur á múslimum og aðgerðir til að líta vel út fyrir þegan sína
Ég á bágt með að trúa að Bandaríkjamönnum finnist réttlátt að Ísraelsmenn fái landið sitt aftur eftir þúsundir ára vegna þess að það stendur í heimildum að þeir höfðu búið þarna. Hvað með þann þjóðflokk sem átti heima þarna á undan Ísraelsmönnum, getur hann ekki komið og krafist að fá landið sitt aftur.
Hvert er ætlast til að Palistínumenn fari?

Aðalegi vildi ég benda á að ef Bandaríkjamönnum finnst þetta vera réttlætanlegt þá ættu S.Þ. að afhenda frumbyggjum Norður-Ameríku landið sitt aftur því þeir áttu það á undan Bandaríkjamönnum sannanlega.

Hvað myndi George Bush segja þá?

Einn forvitinn
“Where is the Bathroom?” “What room?”