Er Árni stórglæpamaður miðað við höfðatölu? þar sem Íslendingar eru alltaf að mæla allt miðað við höfðatölu
þá var ég að spá í hvað þetta væri eiginlega stór glæpur hjá Árna miðað við höfðatölu?

Hann á að hafa stolið um 8 millum frá Íslensku þjóðinni (sem vitað er um) sem er kanski ekki mikill peningur, en ef maður fer að spá í hvað hann stal miklu frá hverjum og einum Íslendingi og miða það svo við höfðatölu í öðrum löndum þá er maðurinn einn mesti glæpamaður aldarinnar!

Hér eru nokkur dæmi:

8.000.000 Kr. deilt með 300.000 = 27.Kr stolið af hverjum Íslendingi

Ef hann hefði stolið 27Kr frá hverjum Bandaríkjamanni þá væri þetta um 7,560,000,000 Kr

Ef hann hefði stolið 27Kr frá hverjum Indverja þá væri þetta um 27.809.760.915 Kr

Ef hann hefði stolið 27Kr frá hverjum Kínverja þá væri þetta um 34.374.023.973Kr

þannig að ég get ekki séð annað en að maðurinn sé alveg stórhættulegur og ætti að vera lokaður inni í langan langan tíma. :)

Takk takk

Malki.