Mér brá í brún á föstudaginn á leið minni um Austurstræti þegar ég sá 4 náunga með “afganahúfur” við að bjóða bæklinga um islam. Þeir voru hér síðasta sumar líka en eru nú komnir aftur að boða sitt fagnaðarerindi. Ég gluggaði í pésana þeirra þá og sá mikið af and-gyðinglegum áróðri, t.d. að þeir hefðu drepið Jesú, og annað til að sleikja upp kristna. Nú orða þeir þetta fínna og tala aðallega um hvað islam sé friðsæl trú og beri mikla virðingu fyrir konum, mig langar nú að fara og spyrja þá af hverju trú þeirra sé svona afbökuð í öllum þessum arabaríkjum.