Ég er orðinn langþreyttur á þeim áróðri sem peace4all stendur fyrir hérna en þverneitar fyrir það að vera með áróður.

Hvernig væri það að allir hugar ignoruðu bara allt sem þessi maður skrifar og láta sem svo að hann sé bara ekki hérna, því að hann elur bara á áróðri um palestínumenn og araba, er búinn að sýna það marg oft að hann “hati” araba ofl.

Ég er alveg með málfrelsi og allt það en það eru takmörk fyrir því hve vitlaus maður getur verið og tekur ekki rökum, ég las það, ég veit það bara, ég heyrði það sagt, það er bara svona, hver er ekki orðinn langþreyttur á þessum ömurlegu fullyrðingum p4a.

Ég trúi því ekki að Heimsþorp, sem segist vilja berjast gegn fordómum, vilji viðurkenna að hafa svona rasista innanborðs og ég skora á einhvern sem er í heimsþorpi annan en p4a að koma fram og segja hvort hann er studdur í sínum skoðunum ( ef einhverjar eru) og þá er þetta heimsþorp nú ekki mikil samtök til að eyða fordómum!

Málefnaleg umræða er öllum góð, maður kemst að einhverju nýju, eða kemur öðrum í skilning um eitthvað sem þeir voru að fullyrða en er vitlaus osfv. En p4a getur ekki tekið þátt í málefnalegum umræðum, heldur á hann heima á sinni eigin heimasíðu að spjalla við sharon vin sinn.

Ef p4a er einhver 10 ára krakki að bulla í huga notendum, hey klapp á bakið hjá þér, hefur glætt okkar tilvist með ákaflega heimskulegum svörum, eins og “arabar eru ógeðslegir” og fleiri sniðug komment. Sem sýna bara fáfræði p4a og styður rök mín að það getur ekki verið að hann sé 31 árs, nema þá að hann hafi staðnað í æsku, maður veit aldrei.

En jæja, þið megið alveg dissa mig fyrir að reyna að hindra málfrelsi og annað bull, en það er bara komið nóg og ég held nú bara að það ætti bara að setja banner fyrir alla sem koma inná síðuna, p4a bullar!!.

Kv Beerbelly