Ástæðan fyrir þessum greinaskrifum er sú að eftir að hafa lesið á annað hundrað greinar og greinasvör um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs hef ég komist að því að margir hérna á Huga gera sér ekki grein fyrir orsök þessara “átaka”. Svona til frekari glöggvunar ætla ég að setja þetta mál allt saman í annað samhengi.
Ímyndum okkur að eitthvað af öllum kjarnorkuúrganginum sem Bandaríkjamenn geyma á Grænlandi berist út í umhverfið og öll Grænlenska þjóðin er í lífshættu! Það liggur í augum uppi að þeir verða að flýja jökulinn sinn í flýti en hvað er til ráða? Jú SÞ og Bandaríkin ákveða að gefa þeim bara Seltjarnarnes, 101 Reykjavík, Hlíðarnar, Kópavoginn og Reykjanessvæðið til þess að búa á. Ísland var jú einu sinni heimaland Eiríks Rauða (fyrir 1000 árum) og því ættu allir Grænlendingar sjálfsagðan rétt á að búa hér í þessu forna heimalandi sínu. Eftir 40 ár yrðu Grænlendingar svo búnir að byggja sér her til þess að hrekja okkur yfir í Borgarnes á meðan þjóðarleiðtoga okkar yrði haldið í gíslingu í Kringlunni!
Ég er ekki viss um að margir Íslendingar myndu sætta sig við þessar aðstæður.