Ég var að fletta í gegnum sjónvarps stöðvarnar nú um daginn og datt inn á Omega, trúarlegu stöðina.
Þar sem ég sá þar vakti hjá mér gríðarlegan óhug. Ekki það að ég vissi ekki af þessu þarna fyrr og ég hef séð það oft áður, en nú var mælirinn fullur og ég get ekki orða bundist. Hálvitinn á 12-strengja gítarnum (Afsakið ómálefnalegheitin en nú ég er reiður) stendur þarna upp á sviði og er að kyrja einhverja lofsöngva. Þess á milli er hann að heilaþvo einhver grandvaralaus börn upp á sviði. Blessuð börnin fá aldrei tækifæri til þess að taka sjálfstæðar ákvarðanir um sitt eigið hugarfar vegna skepnuskapar þessara brjálæðinga.
Þetta andlega níðverk á börnum verð ég að setja í sama flokk hvert annað níðingsverk sem fram fer á börnum á borð við kynferðislegt ofbeldi. Barnið á aldrei eftir að bíða þess bætur að vera heilaþvegið á þennan hátt í æsku.
Reyndar veit ég að þetta blessaða ólánsama sértrúarfólk heldur að það sé að gera gott en eitthvað verður að gera til þess að bjarga blessuðum börnunum.
Ég veit fyrir mína parta að eitt það mikilvægasta sem ég á er það frelsi sem ég hef til þess að hugsa sjálfstætt og mynda mér mína eigin skoðun til lífsins og tilverunnar frá því daglega áreiti sem ég verð fyrir. Þetta heitir einfaldlega andlegt frelsi og skoðanafrelsi.
Annað sem mér gremst ekki síður er hinn ríkisrekni heilaþvottur þjóðkirkjunnar í kringum fermingar. Sá hræsnarabragur presta er efni í heila bók og þarf varla að hafa fyrir fólki.
Ég legg til að eitthvað verði gert til þess að sporna við þessu ástandi. Hugsanlega væri hægt til að byrja með að banna öll börn undir 18 ára aldri í trúarsöfnuði. Eftir það er vonandi að eitthvað að börnunum hafi nægjanlega sjálfstæða hugsun til þess að taka ákvörðun um þetta sjálf. En bann er auðvitað engin lokalausn á svona vandamálum og þarf hugarfarsbreytingu til, og leggja þarf niður kennslu í biblíusögur í barnaskólum.


kv
skl