Hvernig má það vera að flokkur sem kennir sig við nýfrjálshyggju og hægri stefnu
skuli vera á barmi gjaldþrots í hugmyndafræði er kemur að lausn davíðshrunsins á Íslandi.

Af hverju gat Geir ekki tekið til í seðlabankanum eins og samfylkingin í fjármálaeftirlitinu?

Af hverju er LOGO sjálfstæðisflokksins GRIMMUR fálki sem ræðst á allt sem hreyfist?

Sýnir það ekki best að þessi flokkur hugsar bara um sig og sína og tekur gildi
flokksins fram yfir hag þjóðarinnar?

Hvernig ætli það sé að vera innmúraður?

Hvernig ætli það sé að alast upp í fíkn á peninga (Græðgisvæðingin)?

Hver er munurinn á því að vera Níkótínisti, Alcoholisti eða Spilafíkill?
Svar: allt saman fíkn.

Viljum við að Ísland verði eins og Bandaríkin?
Viljum við að 25% íslendinga verði ólæsir komandi kynslóða?
Viljum við að aðeins (auðmenn … ha ha ha) fái afgreiðslu í heilbrigðiskerfinu?
Viljum við að 10% íslendinga svelti?

Hvað er að vera auðmaður?
Er það sá sem er spurður að því hvað er það dýrmætasta sem þú átt?
Er svarið leynireikningur í karibíahafi?
Er svarið kannski fjölskyldan og góð heilsa?

Hvernig stendur á því að 22% íslendinga jafnvel þótt í láglauna stöðu sé kýs sjálfstæðisflokkinn?

Hvernig stendur á því að á www.amx.is sem er greinilega sjálfstæðisvefur að þar er fuglahvísl?
Þora menn ekki að koma fram undir nafni? eða af hverju er allt svo falið hjá sjálfstæðismönnum?

Allt sem er falið er ógegnsætt o.þ.l. eitthvað sem er verið að pukra með á bak við tjöldin
til að fíknin nái að halda áfram, þetta minnir á Alcoholista, hrokinn hefur yfirhöndina.
Það virðist vanta alla auðmýkt.

Hvar eru allir þeir sem voru með svo há laun af því að þeir báru svo mikla ábyrgð?

Veist þú um einhvern sjálfstæðismann sem hefur sagt af sér og axlað ábyrgð?

Ætlar þú að kjósa sjálfstæðisflokkinn?

SKO