Ritskoðanir á Netinu að hefjast (..lesist fljótt*) * “lesist fljótt” er auðvitað bara smá húmor en þetta mál er hinsvegar háalvarlegt..

Varðandi Grein í mogganum frá 28 Nóvember sem ber heitið “Unnið við að setja upp síur fyrir myndefni á netinu” og forsíðufrétt í 24Stundum frá 10 Nóvember sem ber heitið “Lögreglan hefji rannsókn á netinu”.

Efni Fréttanna:

Það segir í frétt moggans Embætti ríkislögreglustjóra hefur unnið að því í samvinnu við Barnaheill og netþjónustur, að koma upp síum á myndefni, sem ætti að koma í veg fyrir dreifingu á netinu á myndum, sem tengjast ofbeldi á börnum og barnaklámi. og er það sjálfsagt framhaldi af því sem kom fram á forsíðunni á 24Stundir en þar var viðtal við manneskju hjá alþjóðadeild lögreglunnar, og hún talar um nauðsyn þess að fá fjármagn til forvarnarstarfs gegn barnaklámi sem á að virka þannig að lögreglan í samvinnu við netþjónustufyrirtæki geti hindrað að ákveðnar skrár verði hægt að niðurhala, og er talað um eitthvað stafrænt auðkenni í þeim efnum, allt þetta hljómar svo sem gott og blessað við fyrstu sýn en þá spyr maður á sía sem þessi alveg pottþétt eftir að koma í veg fyrir dreifingu barnaklámi á netinu? svarið er einfalt.. Nei.

Það sem þetta er, er einfaldlega ódýr leið til að innleiða ritskoðun á internetið, undir því yndislega yfirskyninu að bara sé verið að sporna við dreifingu barnakláms og að það sé eini tilgangur yfirvalda þegar þau setja síu á internetið, en eins og kemur fram hér á eftir þá er raunin önnur á hinum Norðurlöndunum, þar sem annað og meira en bara barnaklám er síað frá sjónum þarlendra netnotenda.



Forsaga Sambærilegra Aðgerða:

Það kemur fram í fyrrnefndri frétt 24Stunda að þessi gagnasía sé Norsk að uppruna og hafi verið í prófun þar í landi í eitthvern tíma (Noregur er land þar sem rætt var á sínum tíma um að banna MP3 spilara JÁ HALLÓ!! rugluð og tækniheft yfirvöld þar á sveita-bæ, og svo er ein plugin við Skype forritinu bönnuð þar því Norski Ríkissíminn kvartaði tekjumissi.. Common!! :P), svo var þessi sía líka tekin upp í Svíþjóð fyrir eitthverju síðan og hafa orðið nokkur vandkvæði á hvað þessi sía hefur átt til með að flokka sem barnaklám og hvað ekki, sían hefur nefnilega að eitthverri ástæðu hafið það að loka á sumt það afþreyingarefni sem deilt í gegnum þarlenda heimsþekkta torrentsíðu sem ef það væri barnaklám, forsvarsmenn torrentsíðunnar sem ber nafnið www.thepiratebay.org eða TPB, telja yfirvöld vera með þessu að ganga erinda Alþjóðlegra Höfundarréttarsamtaka en ekki barnaheillar í Svíþjóð,enda undirbúa þeir nú að kæra þessa ritskoðun og spyrja sjálfsagt hvað sé næst á að loka aðgangi að Norður Kóreskum, Írönskum o.s.f. síðum til að þóknast Bush stjórninni í stríðinu þeirra gegn hryðjuverkum, hvar á þessi ritskoðun að enda?



Virkni Síunnar:

“Digital Signature” Tækni við að stafrænt auðkenna skrár er síður en svo fullkomin og má líkja henni ef eitthvað við vírusvörn þ.e.a.s. allt nýtt efni sem ekki er búið að bera kennslu á fer óhindrað í gegnum síuna, svo getur það tekið langan tíma og mikla vinnu að bera kennslu á barnaklámið og uppfæra síuna, ásamt því að öll vinna í kringum svona gangaöflun kostar heilmikið, og hver á svo að borga fyrir þessa ritskoðun?

Svo er tæknilega rúsínan í pulsuendanum varðandi þessa of metnu sía sú á að hún á ekki eftir að koma til með að geta hindrað neina dreifingu á barnaklámi þar sem skrár sem innihalda slíkt er hægt að breyta yfir í annað vídeó eða myndaformat og þá þekkir sían efnið ekki lengur og hleypir því í gegn, það eina sem þetta á eftir að gera með tíð og tíma ef af verður er að skapa aukinn pirring meðan netnotenda þar sem eftirþví sem gagnabankinn sem sían styðst við verður stærri þá á hættan á því að sían blokki eitthvað efni sem er alls ekki barnaklám en hefur kannski sömu stærð, skráarformat o.s.f. sem stafrænt auðkenni eitthverrar eldgamallar barnaklámsskrá hafði.



Sýnidæmi:

Þannig að tökum dæmi um aðila sem var tekinn fyrir barnaklám, hann er búinn að taka út refsinguna sýna eða á eftir að gera það, allavegana gagnagrunnur síunnar hefur á þeim tímapunkti verið uppfærður með öllu því efni sem hann var með, og þessi barnaklámshneigði aðili átti afrit af efninu sem lögreglan kom ekki höndum yfir ok hann fer á netið og kemst að því að hann getur ekki sent neitt af því efni sem hann er með útaf síunni svo hvað gerir hann? hann niðurhalar eitthverju myndvinnsluforriti sem bíður uppa svokallað “Batch Conversion” velur allar gömlu ljósmyndirnar sem hann er með velur svo nýtt ljósmyndaformat velur að breyta nafninu á þeim ef það á við líka og smellir á “Run”, bíður í nokkrar mínútur fær sér kaffibolla og svo er hann kominn með sömu myndirnar en bara án gamla bannaða stafræna auðkenninu og getur deilt þeim frjálslega eða þar til hann þarf að breyta um format aftur, og það sama getur hann gert með vídeó í videóvinnsluforriti nema það tekur aðeins lengri tíma.

Þetta þýðir að grunni til er svona sía lítið sem ekkert að virka á þá fáu sem henni er ætlað að virka á og ef eitthvað þá væri hún bara að bjóða uppá framtíðar vandamál fyrir þá mörgu sem henni var ekki ætlað að virka á, því eftir því sem gagnagrunnurinn sem bera þarf stafrænt auðkenni skjala saman við verður stærri þá má leiða líkur að því að vinnslan við að bera allar þær skrár sem fara manna á milli saman við sífellt stækkandi gagnagrunn stafrænna auðkenna eigi eftir að valda síauknum töfum á allri umferð ásamt því fyrrgreinda möguleika á að venjuleg skjöl séu ranglega auðkennd sem barnaklám, allt þetta er svo bara uppskrift að óánægju og pirringi á meðal netnotenda útí stjórnvöld, lögreglu og símafyrirtæki sem svo sér ekki fyrir endann á, og það svo er allt fyrir utan þann möguleika að stjórnvöld fari að beyta þessarri síu gegn öðru því efni sem þeim þykir óæskilegt að landinn líti augum.



Niðurstaða:

Persónulega væri ég samt alveg til í að sjá þetta gerast bara til að þeir myndu sanna það sem maður hefur sterkan grun um að sé raunveruleg ástæða á bak við svona síu á veraldarvefinn eða nákvæmlega það sem haldið er fram af öðrum glöggum netriturum hérna á blog.is þ.e.a.s. bara meiri ritskoðun og enn meiri ritskoðun, mér skilst þetta sé að eitthverju leiti í notkun í Noregi nú þegar og hef heyrt að eitthverju þvílíku hafi verið beitt gegn TPB í Svíþjóð af þarlendum yfirvöldum þótt sýnt væri að ekki væri um barnaklám að ræða á síðunni, þ.e.a.s drullusokkarnir eru að reyna að nota barnaklám sem yfirskyn afþví þeir vita að hinn tæknihefti hluti almennings á ekki eftir að sjá neitt athugavert við svoleiðis aðgerðir afþví hann veit einfaldlega ekki betur.

Það er alltaf talað um Samnorrænt þetta og Samnorrænt hitt, svo fara allir dómsmálaráðherrarnir heim til sýn og láta eins og þetta sé eitthver sem þeir hafi ekkert persónulega með að gera, en við þjóðin verðum nú að sýna lit í samstarfi við hin norðurlöndin og taka þetta upp engu að síður, og þannig telja þeir sig sjálfsagt geta forðast að neikvæð athygli málsins hafi bein áhrif á pólitískar vinsældir þeirra, en þetta mál abbast uppá hæstvirtann dómsmálaráðherra Íslands og mætti spyrja að því tilefni er þetta hluti af Öryggis & Eftirlits Öldunni sem hefur riðið yfir Íslenskt samfélag á síðustu árum? en hafa ber í huga að Security og Safety er tvennt ólíkt, þótt það þýðist bæði sem Öryggi.

Þetta er náttúrulega bara Öfga Forræðishyggja, það er ekki eins og svona sía eigi eftir að koma til með að “lækna” eitthverja barnaperra þarna útí samfélaginu, eða hvaða jákvæðu áhrif sem þeir talsmenn hennar halda annars fram að þetta eigi svo eftir að skapa, Þetta er bara eitthvað sem hljómar vel en er svo bara hörmulega léleg og óþroskuð hugmynd.

Enda held ég að ef Vidkun Quisling væri enn lifandi þá yrði hann stoltur af löndum sínum núna í þeim Forræðis Fasisma sem þeir nú flytja yfir á annara þjóða net, enda ekki mikið spunnið í þarlenda netverjar sem eru sjálfsagt of uppteknir við að totta olíuspenann á ríkinu til að sjá að það er verið að valta yfir persónufrelsi þeirra, með síaukinni ritskoðun.

Og segjum sem svo fræðilega séð að þetta myndi virka alveg eins og stjórnvöld segja og að eitthverjir barnhneigðir einstaklingar fengu ekkert barnaklám á netinu, mun þeir þá hætta að spá í börn, myndu þeir læknast? hvaða töfralausn á þessi sía eftir að skapa nema þá að þesslags einstaklingar leyti sér fróunar í sýnu nánasta umhverfi þá í staðinn? úr hinu stafræna í hið áþreifanlega.. nei maður bara spyr, er það kannski ekki alveg eins möguleiki.
...