Jæja, nú hef ég ákveðið að færa mig aðeins útaf mínu “comfort-zone” á kynlífi og reyna að höfða til ykkar hér á deigluni með einhverju sem er mér mjög kært.

Fyrir stuttu síðan stofnaði ég, ásamt tveimur öðrum, Feministahreyfinguna Pro-Sex. Pro-Sex Feminismi er ákveðin stefna innan feminisma sem virðir þann valkost kvenna að taka þátt í kynlífsiðnaðinum af fúsum og frjálsum vilja. Reyndar trúa Pro porn Feministar á það að kynferðislegt frelsi er stór partur af Kvennfrelsi og bara frelsi yfir höfuð.

Við erum fólk sem syrgja það að Anti-Porn Feministar hafa komið miklu óorði á þetta annars fallega orð, Feminismi. Við teljum okkur hafa sömu sjónarmið í flestu nema við trúum á fullt frelsi einstaklings.
Einstaklingur á rétt á að selja sig og sína þjónustu, sama í hvaða mynd það er. Sama hvort aðilli tekur að sér vinnu í bónus eða í klámi.
Við vitum af tilvist kynlífsþrælkunar og viljum að samfélagið í heild sinni taki ábyrgð á að útrýma því með að hafa kynlífsiðnaðinn uppá yfirborðinu. Að fólk sem kýs, af fúsum og frjálsum vilja, fái sömu réttindi og fólk í hvaða annari vinnu.

Við viljum einnig vekja athygla á því að karlmenn eru ekki einu neytendur kláms.

Við erum fólk sem viðurkenna það að jafnrétti á ennþá aðeins í land, en förum ekki frammá aðgerðir einsog “jákvæða mismunun”.

Við trúum því að það er rangt að líta niður á fólk einungis vegna þess að það eru kynverur.

En fyrst og fremst trúum við á og fögnum Styrk konunnar í allri sinni mynd. Konur eru ekki fórnalömb sinna eigin valkosta!

Við erum Pro-Sex Feministar!

“Sex-positive feminists oppose legal or social efforts to control sexual activities between consenting adults, whether these efforts are initiated by the government, other feminists, opponents of feminism, or any other institution.”
Tekið af Wiki um Pro-Sex feminisma.

Okkar fyrsti opinberi fundur mun vera 3.Júní kl 16:00 á Classic Rock Sportbar í Ármúla.

Við vonumst til að sjá sem flesta þar. En ef einhver vill lesa bloggið okkar þangað til þá er hér linkur inná moggabloggið okkar.
http://pro-sex.blog.is/blog/pro-sex/
Og vil líka benda á að ef einhver er með spurningar er lítið mál að senda mér PM eða senda okkur línu á pro-sex@simnet.is

Takk fyrir.