Í tilefni nýrra laga.

hversu ungt er of ungt, og hversu mikið er of gamalt…
Þetta er spurningin sem allir geta fundið svar við, hugsaðu til baka, lærðu af eigin reynslu..
Hvað varst þú gömul/gamall þegar þú byrjaðir að hafa mök, hvað var hinn aðilinn gamall/gömul, fannst þér þú vera of ung/ur, eða hinn aðilinn of gömul/gamall fyrir þig….

Í alvuru hugleiðum þetta aðeins, verum hreinskilin….

Mín reynsla er sú að ég missti meydómin 15 ára, með sták sem var 17 ára, þess má geta að hann vissi álíka mikið og ég hvað við vorum að gera, þar sem hann var einnig hreinn sveinn.
Þegar þetta átti sér stað fannst mér ég alveg nógu gömul til að byrja að stunda kynlíf.
þegar ég hugsa til baka, þá sé ég að ég var undir smá hópþrýstingi þar sem ég var sú síðasta í mínum vinahóp til að missa meydómin, og núna seinna finnst mér ég hafa verið alltof ung, og ég haqfi ekki átt neitt erindi með að byrja á þessu, ég naut þess ekki þetta fyrsta skipti, og leið hálf illa með þetta, kanski allra helst vegna þess að ég var ekkert voðalega hrifin af gaurnum, og strax eftir á hætti hann með mér (við höfðum byrjað saman fyrr um kvöldið)
þau skipti eftir á sem ég stundaði kynlíf, naut ég þess ekki, í raun fyrsta skiptið sem ég tók góða áhvorðun um það með hverjum ég svaf hjá og aktaði á mínum eigin löngunum, þá var ég 17 ára.
Í huga mínum er það í raun einnig aldurinn sem mér finnst sem ég hafi verið nógu þroskuð til að stunda kynlíf.

Strákurinn sem afmeyjaði mig var 17 ára eins og áður kom framm, og mér finnst hann ekkert hafa verið mikið þroskaðari en ég, og að aldusmunurinn hafi ekki verið “of mikill”, en strákurinn sem ég svaf næst hjá var 24 ára, (ég missti meydómin í nóv. og byrjaði með hinum í mars, sem sagt enn 15 ára þá) hann var önnur saga, í dag finnst mér eins og hann hafi verið alltof ágengur og þrýst mig til að ger hluti í kynlífi sem ég var ekki (þá allavegna) tilbúin að gera og leið ekki vel með, hann var alltof gamall fyrir mig og ég enn alltof ung og óörugg til að þora að segja nei.

Þetta er mín reynsla og álit, ég er alls ekki að alhæfa að fólk eigi ekki að byrja að stunda kynlíf fyrir 17 ára aldur, en það er hins vegar aldurin sem ég hefði viljað byrja, aldurinn sem ég í alvurinni hefði verið tilbúin og nógu þroskuð til að standa á mínu og taka ábyrgar áhvarðanir, endilega segðu mér þína reynslu, og þitt álit, hvenar hefðir þú verið tilbúin/n. Hversu mikill aldurs munur er leyfilegur þegar unglingar eiga í hlut.