Afhverju eiga stelpur að vera eins og ,, stelpur eiga að vera''?

Afhverju verða stelpur að passa hvað þær segja, hvernig þær láta og hvað þær gera yfir höfuð!

Ég hef tekið eftir því að það eru miklar væntingar til allra núna, allir verða að vera svona eða svona, stelpur eiga annað hvort að vera alveg svartar af ljósabekkjum, eða náfölar(Emo eins og það er kallað.) þær verða alltaf að tilheyra einhverjum stíl, mála sig svona og svona, og ganga í fötum sem líta akkurar svona út! Og síðan eru línurnar líka stór hluti af því hvernig þær eiga að líta út! Ekki of feitar, ekki of grannar, stór brjóst, flottan rass og síðan mitti sem sést OF vel, þær verða að vera alveg eins og Barbie og helst betrti ef eithvað er! Þær verða að vera á föstu, auðvitað með sem flottasta strákinum, og alls ekki spá í of marga stráka, þá eru þær kallaðar hórur.

Strákar verða líka að vera massaðir, ljósabekkja svartir og alltaf í ræktinni, axlabreiðir og annað hvort hnakkar eða emo, þeir eiga að vera vel vaxnir með six-pack og axlabreiðir, eða þá rosalega emo, útgataðir og tattoo-aðir! Strákar eiga líka að líta út eins og Ken eða þá Marilyn Manson eða Wednesday 13! Þeir verða að láta akkurat einhvernvegin, og auðvitað vera með flottustu stelpunni, eða þá vera með 10 stelpum í einu! Hözzlerar og hlusta á réttu tónlistina.

Vinur minn sagði mér líka frá því að í Verzló(verslunnarskóla Íslands) að fólk væri flokkað niður eftir því hversu ríkir foreldrar þeirra væru! Hann á vini þarna, og þeir þekkja þetta víst mjög vel, ríku krakkarnir meiga ekki tala við þá sem eiga ekki foreldra sem bókstaflega drulla peningum!

Eru kannski komnar of miklar kröfur? Ég meina, fólk má auðvitað gera einhverjar kröfur það er bara gott mál, en þessar kröfur verða líka að vera í hófi, eins og orðatiltækið segir, allt er gott í hófi!

Það er núna hægt að flokka alla niður í einhverja sérstaka félagshópa, eins og tildæmis, hnakkar, arty, emo, barbie, goth, hippar o.fr. Er kannski komið nóg af þessum ‘'fordómum’' allt er að verða rosalegt drama líka, hnakkar eiga víst líka að hata emo, og emo hata hnakka, og allt svona.

Er ekki komið nóg?

Endilega svarið mér og segið ykkar skoðun!