Nú eftir viku mun Smáralindin opna, stærsta verslunarmiðstoð landsins. MArgir eiga eftir að fara þarna og gera sín kaup, BÆði fyrir jólin og annað. Á mörgum manninum rennur á kaupæði er nálagst jól og eftirmálar jólainnkaupa geta verið æði misjafnir. Fólk bugnar utan fjárhaglegu álagi og jólastressi. Er hálft næsta ár að ná endunum rétt saman, sumir hreinlega gefast upp þegar önnur áföll skella á og láta lýsa gjaldþrota. Fjölskyldur leysast upp og annað þvíumlíkt og engu líkara en að Djöfullin sjálfur hafi verið á verki.
En er það svo??? Ég, ásamt öðrum höfum komist að því að Smáralindin er verkfæri djöfulsins. Þarna mun margur verða að aurunum api í brjáluðu kaupæði. En hvernig fáum við út??? Jú ef við lýtum á þenna opnunartíma SMáralindar kemur þetta í ljós. Eins og glöggir lesendur vita er opnurartímin 10.okt´01 kl: 10:10.. sem útlegst sem 1010011010. Þegar ég sá þessa tölu hugsaði ég með mér að þetta væri tala úr tvíundarkerfinu(Binary) og prufaði þaraf leiðandi að reikna hana sem binary og færa yfir í tíundarkerfi( Talnakerfið sem alheimurin notar í almennu máli) Kemur þá í ljós talan 666. Og eins og allir vita er það tala Djöuflsins.
Það liggur því ljóst fyrir að þeir menn sem standa fyrir byggingu Smáralindar hafa selt sálu sína til Djöfulsins til að geta orðið ríkir og komið öðru fólki í ládeyðu. Fólk í ládeyðu hættir til að brjóta boðorðin og fremja einhver af dauðasyndunum 7. Þar með er fólkið orðið eign Djöfulsins sem kemur sér vel fyrir og safnar sálum manna. Því skal því segja og komið þessum boðskap áfram að Smáralindin er Musteri Djöfulsins og þangað skal enginn fara nema í helvíti vill.


- Hafa skal í huga að þessi póstur ekki skrifað neinum til höfuðs og er algerlega settur fram í háði
:: how jedi are you? ::