Þetta rakst ég á á visi.is í morgun….Þvílíkt og annað eins ójafnrétti!!! Þetta fólk á að vera fundið sekt um MORÐ ekki manndráp!! Ég skil ekki hverngi hægt er að pynta lítið saklaust barn til dauða! :(
Þetta fólk á ekkert gott skilið nema bara sprautuna eða stólinn!!!


Fréttablaðið, Mán. 1. okt. 16:37
Foreldrar dæmdir fyrir manndráp
Faðir og stjúpmóðir Lauren Wright, sex ára gamallar breskrar stúlku sem lést eftir margra mánaða svelti og misþyrmingar, voru í dag fundin sek um manndráp fyrir Norwich Crown-dómstólnum í Bretlandi.

Lögregla segir stjúpmóðurina, Tracy Wright, 31 árs, vera viðurstyggilegan sadista og telur föðurinn, Craig Wright, 38 ára, samsekan. Faðirinn segist ekkert hafa vitað um misþyrmingar á barninu og hjónin, sem einnig voru dæmd fyrir að nmisþyrma barninu vísvitandi, neita bæði allri sök.

Lauren lést á heimili sínu í Welney í Norfolk í maí á síðasta ári.

Ákæruvaldið sagði frá því í réttarhöldunum að Lauren hefði fengið svo þungt högg í magann að meltingarfæri hennar eyðilögðust. Við krufningu komu í ljós sextíu áverkar á barninu.

Ég vona að einhverntímann verði hægt að vernda bönrin frá svona ógeðum!!!

Stelpan

*argggggggggggggggggggggggggg*