Í dag er ekki góður dagur, heimskir stjórnmálamenn vilja taka öðruvísi á glæp sem að er framinn með aðstoð tölvu en glæp sem að er framin án aðstoðar tölvu, jafnvel þó að brotið sé hið sama. Þannig að ef að þú rænir einstakling vopnaður hnífi, þá færðu líklega lægri dóm en ef þú rænir hann með því að nota VISA-kortið hans á Amazon eða brjótast inn á bankareikning hans á netinu. <a href="http://bre.klaki.net/dagbok/faerslur/1001415192.shtml">Bjarni</a> spöglerar aðeins í þessu í dagbókinni sinni meðal annars.

Á sama tíma er Sólveig Pétursdóttir að íhuga það að skerða frelsi almennings í landinu til þess að eiga auðveldar með að taka á starfsemi hryðjuverkamanna. Eins og við vitum öll þá er hérna grasserandi hryðjuverkastarfsemi, hver getur gleymt því þegar að fáni Ísraels var brenndur 1996 af DJ Eldari og félögum, og þegar að eggjum var kastað í bandaríska sendiráðið. Mér er því mun rórra að vita að dómsmálaráðherra ætlar nú að skerða frelsi okkar til þess að hryðjuverkamönnum verði ekki óhætt hér á landi.

Það er ávallt eftir svona válega atburði að við fáum út úr skápunum fasistana sem að vilja ekki unna okkur persónufrelsi, eins og sést í Bandaríkjunum og jafnvel hér á landi. Þeir vilja að netþjónustuaðilar eigi afrit af öllu sem fer í gegnum þá, á þá póstþjónustan ekki að fara að opna öll bréf sem að hún sendir og ljósrita efni þeirra og troða í skjalaskápa? Þessir fasistar nýta sér tilfinningarótið sem er í hugum almennings og lofa þeim að skert frelsi hans muni gagnast í baráttunni gegn hryðjuverkum. Svona athæfi er í dómsmálum kallað að nýta sér á óviðeigandi hátt tilfinningalega nauð, og er til þyngingar refsinga. Þetta er náttúrulega ekkert annað en bull, þeir sem vilja fela slóð sína geta það auðveldlega. Þegar þessi réttindi hafa verið tekin af okkur með lögum þá verður það mörgum sinnum erfiðara að fá þau aftur. Nú bíð ég bara eftir því að hverjum og einum verði úthlutaður eftirlitsaðili sem að fylgir þeim eftir dag og nótt, og gætir þess að þessi almenni borgari aðhafist ekki neitt sem að gæti talist ef til vill mögulega ósiðsamlegt eða andfélagslegt.

Stóri bróðir, þú ert 17 árum of seinn, en mér sýnist þú nú vera að koma.
Summum ius summa inuria