Reykingarsenur klipptar úr Tomma og Jenna Eins og stendur í mbl dálkinum á forsíðunni þegar ég skrifa þessa grein þá er búið að banna reykingarsenur í tomma og jenna á Bretlandi og ætlar Barnastöð í því landi að klippa út allar reykingarsenur. Það er svosem skiljanlegt þar sem reykingarsenurnar sína reykingar í glæsileika en ekki í forvarnarskini.
ætli einhver mamman hafi ekki áhyggjur að barnið hugsi fyrst “Tomma og Jenna þyki flott að reykja þá ætla ég líka að gera það :)”

En ætti þá ekki að klippa burtu ofbeldið í Tomma og Jenna líka?

Þar er ofbeldið sínt sem mjög sniðug og húmorísk lausn þess að leysa deilur og Tomma og Jenna. Þar er krökkum sínt að það sé allt í lagi að sprengja,skjóta,lemja,nánast aflima hvorn annan til þess að vandamálið leysist eins og þeir vilja.

Dæmi: teiknimyndin byrjar þannig að Jenni fer blístrandi í ískápinn á húsinu og stelur osti úr ísskápnum aðrir eiga. Tommi sér þetta og ákveður að best sé ekki að tala við músina heldur henda henni af heimilinu. Tommi reynir að ná Jenna úr holunni sinni og teygir höndina inn, á meðan fer Jenni og nær í sleggju og slær fast á skottið á Tomma.
svo stigmagnast þetta út þáttinn. Þarna er sem sagt allt í lagi að stela(því kötturinn er oftast síndur sem vondi kallinn og músin sem sá góði) og beita ofbeldi gegn andstæðingi sínum í daglegu lífi.

það á að fjærlægja allt sem skaðar börn því annars enda þau eins og fólk (eins og ég) sem fékk ekki þessa vernd gegn teiknimyndum, sjónvarpi, tölvuleikjum, lagatextum, blóti o.fl.

ég er óverndað barn barið af afþreyingariðnaðinum
ég reyki útaf því að ég sá það í tomma og jenna
ég tel konur vera ekkert meira en dót til að leika sér með og þær kunna ekkert nema sjá röppurum fyrir ánægju og vellíðan. Útaf því ég sá þetta í rappmyndbandi
ég keyri hratt, lem, pynta og drep fólk útaf því ég hef spilað tölvuleiki sem innihalda þetta.
ég er undir lögaldri og drekk afþví ég sá það í Tomma og Jenna.
og ég er þunglyndur afþví ég hef hlustað á þungarokk í mörg ár.

bara ef einhver hefði sett mig í einangrunarplast og látið mig horfa á omega alla daga, haft mig í heimaskóla með einkakennara þá væri ég mun betri manneskja í dag :(

eins og einhver sagði fyrst
fólk er fífl


og á allt öðrum nótum
AFHVERJU Í ANDSKOTANUM GET ÉG KEYPT SÍGARETTUR SEM ERU MJÖG SKAÐLEGAR HEILSU MINNI ÞEGAR ÉG VERÐ 18 EFTIR NOKKRA DAGA EN EKKI RAUÐ-EÐA HVÍTVÍNSFLÖSKU MEÐ MATNUM !