Já núna er mánudagskvöld, eina kvöldið í vikunni þar sem ég fæ að njóta þess að horfa á uppáhaldsþáttinn minn sem er Conan'o'Brian. Ég fer sækji kókið kem mér fyrir, CSI klárast og hvað gerist, jú Skjár einn tilkynnir mér:

“Næst á dagskrá er Jaaaaayy Leeennooo”

Það er greinilega ekki nóg að hafa Conan'o'Brian bara einu sinni í viku heldur þarf Jay Leno að taka yfir þann tíma stundum líka svo hann verði örugglega alla vikuna stundum. Þeir auglýsa og auglýsa “vegna fjölda áskoranna” (greinilegt að þjóðin vill Conan) og við kvörtum hérna yfir því að Conan sé bara einu sinni í viku, og þeir ákveða að hafa hann bara ekkert þessa vikuna.

Ég ætla að vona að það komi bara í ljós seinna meir að þetta hafi verið mistök og þeir séu bara með nýjan útsendingarstjóra eða einhvern andskotans, either way þá er ég aaaandskoti pirraður.