ATH ÞETTA ER GRÍN GREIN SEM ÉG SKRIFAÐI Í SKÓLABLAÐIÐ EN VAR HAFNAÐ VEGNA GRÓFLEIKA. Á ENGAN MÁTA STYÐ ÉG FORDÓMA!!!!

Hver kannast ekki við að verða pirraður þegar einhver segir “helvítis hommar”. Ef maður er ekki ósjálfstætt þankandi aumingi þá tekur maður öðru hvoru upp hanskann fyrir minnihlutahópa. “Kommon þú getur ekki sagt að allir nýbúar séu 1.50 á hæð. Skúringakonan heima hjá mér er alveg álitleg”.


Hitt er annað mál að ef þú ættir vin sem elskaði allt og alla, myndi verja alla málstaði sama hversu heimskulegir þeir væru, þá myndirðu líklega stökkva nokkra tugi sentimetra upp í loft og slá hann innan nokkra vikna. Þetta er ástæðan fyrir því að hippar dóu út.


Fordómar þurfa ekki endilega að vera alslæmir, t.d. er öllum skítsama þótt einhver rakki niður reykingamenn (nema kannski einhverjir gúmmítöffarar í 10unda bekk (eða hálfvitar í menntaskóla sem halda að þeir séu ennþá í tíunda bekk)). Ég held að gott skítkast öðru hverju sé ekkert nema mannbætandi. Oftar en ekki eru fordómar kveikjan að málefnanlegum umræðum, og í menntaskóla lærir maður einmitt að tala eins og maður og þá hjálpar mikið að hafa æft sig á að segja einhverjum rasista til syndanna.


“Já en þetta er 21 öldin (held ég), við ættum að vera að stefna að fordómalausu samfélagi”
RANGT! Einmitt núna þurfum við á fordómum að halda, þegar að litlu systur okkar eru því sem næst byrjaðar að selja sig úti á götu, og litlu bræður okkar hlusta á bófarapp og “þrykkja í kellingar eins og Gillzenegger”.
Leyfist mér að taka sem dæmi sjálfan mig (þó að ég sé reyndar enginn meðaljón). Ég fordæmi dönsku. Sama hversu rosaleg rök þú kemur með fyrir því að danska sé lífsnauðsynleg, þá held ég samt áfram að fyrirlíta hana. ÞAÐ eru fordómar. Ef ég myndi horfa í gaupnir mér og biðja þig fyrirgefningar og byrja að hlusta á Kim Larssen, þá væri ég ekki fordómafullur, heldur bara aumingi. Og þá gæti hver sem er ráðskast með mig.
Þessvegna eru fordómar fyrir mér mjög nauðsynlegur hluti af sálinni, því að ekki vil ég vera einhver bleyða sem ver marga málstaði í einu, og enda svo með að vera laminn af öllum. Það væri ekki sweet.
Veldu þér fordóm strax í dag, skrifaðu svo blogg um hvað þú hatar það fyrirbæri mikið, og umfram allt, ekki vera aumingi.

Comics ****son, Meistari.
Vó hvar er ég?