Heimsenda-spádóma-bull!!! Vegna þessa kjaftæðis sem gengið hefur á netinu um Nostradamus og spádóma hans(merkilegt hvað alltaf virðist vera vitnað í hann þegar eitthvað gerist) þá ákvað ég að setja inn þessa frétt frá Vísi.is og vona að fólk fari ekki að velta sér upp úr tómu heimsendarugli. Reyndar merkilegt með sumt fólk sem ég þekki sem kveðst vera “trúlaust”(hvað sem það nú þýðir) virðist samt tilbúið að trúa hvaða kjaftæði sem er á netinu. Að mínu mati er þetta ósmekklegt og ef þessi póstur er sendur sem dægrastytting eða afþreying er það ógeðfellt og vanvirðing við fórnalömb þó ekki sé meira sagt.

Þess ber að geta að á Rás2 ræddi við íslenskan þýðanda spádóma Nostradamusar í gær og sagði hann að þetta væri að mestu leiti uppspuni sem gengi á netinu. Varðandi réttann texta sagðist hann eiga erfitt með að heimfæra hann á hina hörmulegu atburði í New York þ. 11. sept. sl. en sagði að menn væru mjög oft afar viljugir til þess að reyna slíkt.


Kveðja.

Manni verður óglatt að hugsa til þess að það er fullt af fólki sem virðist alltaf tilbúið til þess að auka á vanlíðan fólks í kjölfarið á hörmungum með svona bulli.

Jæja ég er hættur að nöldra.
*************************************************************
Mikið þvælt með Nostradamus
Um Netið ganga nú ljósum logum útleggingar á spádómum Nostradamusar, sem heimfærðir eru á atburðina í New York. Misfarið er með margt í þessum tölvupóstsendingum.
Sá póstur sem flestir fá er eitthvað á þessa leið:

Þetta er ótrulegt allt sem þessi maður hefur sett fram, virðist standast.
Nostradamus' prediction on WW3:
In the year of the new century and nine months,
From the sky will come a great King of Terror…
The sky will burn at forty-five degrees.
Fire approaches the great new city…

In the city of god there will be a great collapse,
2 twin brothers torn apart by chaos
while the fortress falls the great leader will succumb
third big war will begin when the big city is burning.
-NOSTRADAMUS

He said this will be bigger than the previous two. 2001 is the first year of the new century and this is the 9th month.
New York is located at the 41st degree Latitude.


Frumtextinn
Hér kemur hinsvegar frumtexti Nostradamusar:
Cinq & quarante degrés ciel bruslera,
Feu approcher de la grand cité neusue,
Instant grand flamme esparse sautera,
Quät on voudra des normäs faire preuue.
Þetta útleggst:
Himinninn mun stikna á fertugustu og fimmtu
breiddargráðu. Bál stríðsins nálgast
nýju borgina. Á svipstundu ryðst fram
og tvístrast gríðarlegur eldur þegar þeir
ætla sér að sannreyna styrk norrænna manna.
Eins og sjá má er þetta talsvert frábrugðið þeim texta sem gengið hefur manna á milli á Netinu og það virðist þurfa talsvert hugmyndaflug til að heimfæra frumtextann hryðjuverkunum í New York í fyrradag.
Smelltu hér til að sjá texta þessa vers í þremur útgáfum, tveimur frá 1557 og einum frá 1568. Þar er einnig að finna enska þýðingu á textanum.

Fyrir þá sem áhuga hafa á að kynna sér frekar frumtexta Nostradamusar má benda á þessa síðu þar sem birtar eru myndir af ýmsum gömlum útgáfum spádómanna.

*************************************************************
„We are all in the gutter, but some of us are looking at the stars.“