Stæðsta hryðjuverk sem gert hefur verið

Báðir turnar World Trade Center eru fallnir en tvær stórar farþegarflugvélar flugu beint á turnana um klukkan 13 að íslenskum tíma í dag. Verið var að reyna að ná fólki út úr byggingunni þegar hún hrundi saman. Mikill reykjarmökkur liggur yfir New York en ljóst er að um er að ræða mesta hryðjuverk sögunnar.

Sagt var frá því að sjónvarpsstöðinni Abu Dhabi fyrir skömmu að hringt hefði verið til stöðvarinnar frá liðsmönnum Lýðræðisafla sem berjast fyrir frelsun Palestínu og að samtökin lýstu yfir ábyrgð á því að tvær flugvélar hefðu lent á World Trade Center í dag. Frá þessu segir á vef breska dagblaðsins Daily Telegraph.