Daginn gott fólk mig langaði virkilega til þess að skrifa grein um Efra-Breiðholt. Jáhá hvar á ég nú að byrja allavega… Ég vildi nú bara að segja ykkur frá Breiðholtinu svokallaða gettói gott fólk.. Allavega málið er að ég er einn af þessum hóp sem hengur alltaf uppí Bónusvideo á hverju einasta kveldi og er að chilla með strákunum spjalla og svona og það reykja reyndar langflestir þarna af hópnum sem ég heng með, Slæmt það :S! En allavega við erum afar rólegur hópur sem höngum þarna fyrir utan Bónusvideo en það er reyndar lagt bareigandann í einelti með því að gera alls kyns kúnstir í kringum barinn hans t.d. að reynað kveikja í barnum hans, erum alltaf að leika okkur að þrusa boltum í rúðuna hans á barnum og fleira því að hann er fífl. Allavega síðan þegar það kom frétt um þessi slagsmál og það hefði verið brotist inní leikskólann og kveikt í gám og fleira þá var það reyndar svoldið rugl ég skal segja ykkur söguna frá mínu sjónarhorni og það sem ég hef heyrt.

Allavega varðandi risastóra hópslaginn þá var þetta einhvað helvítis pakk sem kemur úr Seljahverfi og kemur með einhvað slatta af bílum og fullt af gaurum til þess að lemja 2 gaura hérna í Breiðholtinu og þá nottlega taka þeir 2 sig saman og safna risastórum hóp, Síðan mætast hóparnir 2 fyrir utan Bónusvideo þá er samstundis kallað á lögreglu og það koma 5 lögreglubílar + 1 Fangabíll, Það voru gerð mörg vopn upptæk og allez! Jæja síðan kemur fréttin um þetta og þá er okkur hópnum í Bónusvideo kennt um þetta!! Að við séum svakalegir villingar alltaf í fjöldaslagsmálum og fylleríum ogsvoframvegis. Allavega ég vildi nú bara aðallega að þetta yrði leiðrétt og segja ykkur sannleikann um þetta mál.

Jæja vindum okkur nú að leikskólanum allavega málið er að það voru nokkrir 8.undu bekkingar á fyllerí og síðan tekur einn ónefndur aðili á því að þrusa bjórflöskunni í gegnum leikskólarúðuna og hann gerir það og lætur vaða og hún fer í gegn og þá hröðum við okkur í burtu. Síðan þegar maður kemur að tjékka á þessu stuttu seinna þá var það einhver graffari sem var búinn að fara þarna inn um rúðubrotið og hann var að gera bombu á vegginn inni í leikskólanum og tagga. Okkur Bónusvideo hópnum er kennt um þetta enn og aftur, öllum hópnum þótt að þetta var bara einn aðili sem gerði þetta hehe :P !

Núna erum við komnir að partinum varðandi blaðagámnum sem var kveikt í.. Allavega málið er að það er einn mjög sérstakur strákur hérna í Breiðholtinu sem hefur gaman af því að skemma og rústa öllu í Breiðholtinu hehe :D! Jæja og allavega þá tekur hann bensín hellir ofan í blaðagáminn og kveikir í og það endar í voða.. hehe!! En jæja síðan er öllum hópnum kennt um þetta þegar þetta var bara einn ónefndur aðili sem gerði þetta ekki sanngjarnt.

Allavega ég vildi síðan segja ykkur sögu á bakvið það hversu miklir fávitar dominos gaurarnir geta verið. Ok það byrjar þannig að við strákarnir í 9.unda vorum á fyllerí og ég og einn annar félagi minn vorum fullir fórum síðan í strætó uppí Breiðholt og við löbbum í Bónusvideo of course [That’s The Palace]!! Síðan ákvöðum við að hanga inní Dominos við förum þangað inn og þá kom gaurinn og sagði okkur að fara út , ég fór út en reyndar þá voru 2 aðrir félagar mínir þarna inni að stríða aðeins gaurnum þá varð hann allt í einu geðveikt pirraður og hann kemur og rífur félaga mína báða úr sitthvorum stólnum og gerir það geðveikt harkalega þá verða þeir báðir pirraðir og kýla hann í magann og fara í burtu síðan daginn eftir þá frétta þeir að það á að kæra þá (Good luck fullorðinn maður á móti 14 ára strákum)! :S.. Ég meina af hverju máttu þeir ekki svara fyrir sig?? Gaurinn var dónalegur að rífa þá svona harkalega úr stólnum! En jæja síðan segir gæjinn: Ég skal sleppa því að kæra ykkur ef þið biðjið mig fyrirgefningar og þeir ætluðu fyrst ekki að gera það en síðan ákveða þeir að gera það og þá er það búið mál. Allavega núna síðastliðinn laugardag þá fékk ég meira en nóg af þessum dominos strákum. Því að það kom upp sú aðstaða það kom svona stelpuslagur stelpur á aldrinum 15 – 16 voru að slást og þá kemur allt í einu einhver dominos gæji og hleypur inní og er að stöðva slaginn, Þá ákveður einn félagi minn að hjálpa honum og fer líka inní og þeir eru báðir að stoppa þetta en nei þá rekst óvart félagi minn pínu harkalega í dominos gaurinn því að ein tíkin var einhvað að ýta honum og þá fríkaði dominos gæjinn út og réðst á vin minn og reif bolinn hans, smettaði hann,gaf honum hnéspark í magann og fleira! Þá tjúllaðist nottlega vinur minn eftir þetta og labbar svona að dominos gaurnum þá labbar dominos gaurinn inn og segist ætlað lemja okkur alla krakkana sem voru þarna úti og hringir síðan í lögregluna. Vinur minn labbar að löggunni og ætlar að kæra þetta sem líkamsárás en nei nei.. Þá var það ekki hægt því að það sáust ekki líkamsáverkar (SURE)! En við vorum fjöldi sjónarvotta af þessu þegar dominos gaurinn réðst á félaga minn og lamdi hann en það nægði ekki. Síðan stuttu seinna þá fréttir maður af því að þessi dominos gæji sem réðst á félaga minn sé einhver djöfulsins fazmo tík.. Því að hann þekkir nokkra gaura í fazmo crewinu og hann ræðst ekki á gaura sem eru eldri en 90 Módel! AUMINGI og shit hvað ég er orðinn pirraður á því að heyra að við þessi ákveðni hópur þarna í Bónusvideo séum búnir að gera allt.. En það er reyndar ekki rétt og btw við krakkarnir í Efra Breiðholti erum ekki öll sömul einhverjir heilaskaddaðir krakkar sem eru á dópi og rítalíni og alltaf á fylleríum það er alls ekki rétt en það er litið á okkur þannig :/!

Allavega staðan er þannig að í dag þá er það þannig að það er alltaf að minnsta kosti einn lögreglubíll í Efra Breiðholti að vakta hverfið og kemur reglulega uppí Bónusvideo til þess að tjékka hvort að það séu einhver vandræði þar og síðan kemur það stundum fyrir að það sé einn security gaur fyrir utan Bónusvideo að vakta okkur um helgar. Já þetta er orðið svoldið svona frekar pirrandi!

Jæja allavega ég þakka fyrir mig og vona að þið hafið gaman af því að lesa þessa grein sem ég bjó til varðandi Efra-Breiðholtið og til þess að sýna ykkur rétta sýn á hið Efra-Breiðholt/Hólunum. Ég var reyndar hálfsmeikur við að segja frá þessu hérna á huga en ég hef ákveðið að gera það þar sem að ég sé að þið hafið afar ranga sýn á hið rétta Efra-Breiðholt! Allar Heimildir teknar úr mínum magnaða Heila ;)
Hr. 4 Life !