Hvernig finnst ykkur það að Árni eigi að fara í jail-ið?
Ég persónulega er ekki sátt við það skal ég segja ykkur. Frekar að sekta manninn ekki fara að fleygja honum í eitthvað fangelsi!
Fangelsi er fyrir alvöru glæpamennina og ég lít ekki á Árna sem slíkan. Þetta var bara fíkn hjá honum og hann gat ekki stoppað, Hann þarf bara hjálp!
Það á ekki að loka vesalingsmanninn inni, hann lærir ekkert á því!
Láta hann frekar gjalda fyrir þetta á annan hátt. Vinna fyrir þessu og jafnvel borga eitthverja fúlgur.. en fangelsi.. neibb!
Eins og sást vel á Þjóðhátið þá er almenningur ekki það mikið á móti honum að þau vilji láta loka manninn inni, langt frá því. Hann fékk þessar líka þvílíkur móttökur og gat verið þarna óáreyttur, hélt uppi þessari líka gríðargóðu stemningu þarna í brekkusöngnum!
Ef að það á að loka Árna inni, þá förum við creepz pottþétt og mótmælum þarna fyrir utan!