Hættulegar ættleiðingar!


Nú hef ég fengið nóg af þessu fjárans reykingafólki. Ég las það um daginn að ekkert hindrar reykingarfólk í að ættleiða börn. Það má meira að segja eignast sín eigin börn og það gengur ekki þá má reykingafólk jafnvel fara í glasafrjóvgun.

Ég tek það skýrt fram að ég er ekki með fordóma gagnvart reykingarfólki. Nei alls ekki. En það er samt synd!
Hugsar reykingarfólk aldrei um afleiðingarnar sem það hefur fyrir barnið að alast upp hjá þeim. Það gæti fengið krabbamein! Að auki þá eru reykingamenn slæmar fyrirmyndir. Hegðun er lærð og þar af leiðandi er það rangt að láta fólk alast upp hjá reykingarfólki. Það gerir börnin líklegri til að reykja sjálf.


Gefum hjónabandinu sjéns!

Þegar ég vaknaði upp í morgunn heyrði ég að einhver kellingarlufsa inn á Alþingi ætlaði sér að eyðileggja hjónabandið mitt. Jú, hún vildi leyfa samkynhneigðum að kalla staðfesta samvist sína hjónaband! Leyfa trúfélögum að gefa þau saman!
Ojj. Þetta gerir hjónaband mitt algerlega merkingarlaust! Ég átti erfitt með að horfa í augu konu minnar í morgun. Hugsa sér það heilaga samkomulag sem við þrjú, (ég, hún og jesú) á að vera saurgað með því að leyfa einhverjum dónum niður í bæ að giftast! Ég get varla hugsað mér að eyða degi lengur í þessu hjónabandi. Svo innilega hefur tekist að eyðileggja orðið hjónaband fyrir mér. Það ætti bara að skipta um nafn: Hvað með gagnkynband?
Ég styð Karl Ágúst Úlfsson erkibiskup fullkomlega. Hjónabandið þarfnast umhugsunarfrest, í það minnsta þangað til við höfum ákveðið hvort við yfirhöfuð viljum nota þetta orð lengur.

Hugsa sér það á að þvinga Þjóðkirkjuna til þess að gefa samkynhneigða saman með því að leyfa öðrum trúfélögum að gera það. Helber dónaskapur!


Femínistar

Jafnrétti my ass! Hvernig voguðu femínistar sér að gera athugasemd við framgöngu hæstvirts forsætisráðherra? Hann óskar öllum til hamingju hvort sem þeir eru númer 300.000 eða fallegasta kona í heimi. Það er ekki eins og þetta sé einhvers konar tilraun til að nýta stöðu sína í þeim tilgangi að afla sér vinsælda.
Hvað er eiginlega að þeim. Sjá þær ekki að hún er enn ein rós í hnappagat íslensku þjóðarinnar, sem fann upp kokteilsósuna og selinn? Ég hef aldrei riðið femínista sem var falleg. Femínistar eru feitar beljur!


ATH: Til að spara Damphir erfiði, þessi grein inniheldur áróður og jafnvel kaldhæðni.