Málið er það að er ég búin að vera að vinna hjá dominos síðan þeir opnuðu búðina í keflavík. sem sagt um eitt og hálft ár. Ég lenti í smá vinnuslysi núna 16. Desember sem leyddi til þess að ég fékk heilahristing og tognaði í bakinu. Mér var sagt af lækni að halda mér bara heima næstu daga og hvíla mig. en ég fór að vinna daginn eftir, því það gat enginn tekið vaktina fyrir mig. Svo tilkynnti ég mig bara veika næstu tvo daga.(en fór samt niður í búð um hálf tólf bæði kvöldin til að gera upp og loka) Ég fór svo ekki að vinna fyrr en á þorláksmessu .

Fór svo aftur að vinna annann í jólum og alveg fram á fimmtudag. Ég átti að vera í fríi á miðvikudeginum, en þá lenti einn starfsmannanna okkar í bílslysi (utan vinnutíma) og ég fór á dominos um hálf 10 til að klára að loka(gera upp og svoleiðis).

Svo er ég kölluð inn í reykjavík á fund. Það var búið að lofa mér fyrir mánuði að ég myndi verða aðstoðar verslunarstjóri þarna í keflavík og ég hélt náttúrulega að ég væri bara að fara að skrifa undir samninginn, en annað kom upp á daginn. Ég var rekin

Eina ástæðan sem mér var gefið fyrir að vera rekin var að ég sýndi ekki nægilegann áhuga á því að vinna þarna og verða aðstoðarverslunarstjóri.

Ég hef alltaf mætt í vinnu, aldrei fengið einhverjar ámynningar og hef verið að hlaupa í skarðið fyrir alla og ég kann allt þarna í búðinni..

Afhverju er verið að reka fólk sem kann allt og hefur ekkert gert af sér?


ég er með eina kenningu, þessi fyrirtæki sem reka svona staði vilja bara hafa yngra fólk í vinnu svo þau þurfa ekki að borga þeim eins há laun..