Jæja, þá hafa alþingismenn ákveðið að hækka launin sín um tæp 10% svona í tilefni jólanna. Ég ætla að gera svolítið nýtt á þessu áhugamáli og tjá mig um þetta í bundnu máli. Sjálf bjó ég hjá einstæðri móður minni sem er öryrkji áður en ég var tekin af henni, og hef ég því augljóslega sterkar skoðanir á þessu.

Bráðum koma blessuð jólin,
skrifaði einhver.
Þó gleymdi hann; helvítis drjólinn,
að ekkert gleðilegt við þennan tíma blankur maður sér.
Erfitt er að geta barn sitt glatt,
með mánaðarlaunin…
áttatíu þúsund mínus skatt.

En það skiptir engu máli, ekki satt?
því konan hans Dóra vill nýjan Minkapels,
og það hratt.

Til fjandans með gamla fólkið líka,
þetta hyski gerir ekkert.
Og alltof mikill peningur í þau fer,
án þeirra værum við reyndar ekki hér,
en til fjandans með þau.
þetta er næstum dautt hvort eð er.

Í “lýðræðisríki” búum við,
var okkur í skólanum kennt.
Samt ræður hér ríkjum flokkur,
sem er með fylgi undir tíu prósent.

Í “velmegunarþjóðfélagi” lifum við,
og þú verður ríkur ef lánið við þig leikur.
Passaðu þig samt bara, því þú verður látinn svelta
ef þú lendir í slysi eða verður langtíma-veikur.

“af hverju er jólasveinninn svona vondur við mig” spurði ég mömmu í fáti.
“Ég fæ aldrei flotta hluti eins og Sigga í skóinn”
Mamma reyndi að verjast gráti,
og snéri sér svo að flöskunni.

Það er kominn tími til að binda enda á þetta,
ég læt mig ekki lengur sviksamlega pretta.
Nú stöndum við upp og látum þá þjást.
Ég votta það hér með fyrir guði.
Þeir munu ekki lengur fá ávísun með 6 núllum
á mánuði.
Og ekki heldur launað sumarfrí,
ég mun brenna alla þjóna Illuminati.