Það er vissulega sorglegt og mannlegur harmleikur þegar upp koma spillingarmál á borð við 1. Þingmann Sunnlendinga. Við lifum í þjóðfélagi sem hefur þann stimpil á sér að vera minnst spillta land evrópu. Við erum að vakna upp við það að þjóðfélagið hefur spillst svo mikið almennt hin síðari ár að gera verður hinar ýmsu kostnaðarsamar breytingar hvað varar eftirlit með framkvæmdaraðilum. Hvert fjársvikamálið í einkageiranum hefur verið að líta dagsins ljós og oft tengjast þau ofneyslu ýmiskonar. Dópi, skemmtana fíkn eða jafnvel súlufíklar. Allt er þetta tilkomið vegna breyskleika okkar mannanna og löngun til að sýnast betri en aðrir. Vera pínulítð jafnari en náunginn.
Gaman væri að fara ofaní saumana á t.d. Heilbrigðiskerfinu!!