Eftirfarandi er svar mitt í umræðu á Almennt-korkinum um þennan ófögnuð sem á hrottafenginn hátt nauðgaði stúlku og slapp með þrjú stutt ár fyrir vikið. Þetta mál hefur valdið einhverju sem er ekkert minna en múgæsing líkt \“lynchmob mentality\”. Þar sem viðbrögð margra hafa vakið hjá mér næstum jafn mikinn viðbjóð og umrætt ódæði vildi ég að þessi skoðun mín kæmi fram annarsstaðar en bara á korknum. (Fyrsta setningin er svar við ummælum Gourry um refsingar skv. Gamla Testamentinu.)

Þessi þráður hefst á:
http://www.hugi.is/forsida/korkar.php?sMonitor=viewpost&iPostID=238763&iBoardID=52

“Og ef við ætlum að fara að byggja samfélagið okkar á 1000+ ára trúbók gætum við alveg eins flutt til Afghanistan.

Þetta er ekki bara spurning um hvað maðurinn á skilið, því óneitanlega á hann allt það versta skilið.

Ég stórefast um það að þessi maður verði ”endurhæfður“ á nokkurn hátt. En það þýðir ekki að ég sé tilbúinn til að gefa nokkrum borgara rétt til að ráðskast með líf annars borgara sem er einmitt það sem þessi maður hefur gert. Ég er heldur ekki tilbúinn til að gefa ríkisvaldinu rétt til að svipta nokkurn borgara lífi og ef þið eruð tilbúin til þess þá skuluð þið hætta að kvarta yfir því að dómarar og þingmenn viti ekkert í sinn haus því það er fólkið sem mun beita valdinu.

Vigilantism hlýtur að vera mistækasta form ”refsingar“ sem til er og dauðarefsingar eru lögboðin morð og ekkert annað.”

Ég vill taka fram að ég sendi vefstjóra skilaboð um að þessum þræði yrði eytt af korkinum þar sem upphafsmaður/kona hans biður fólk um að beita umræddan afbrotamann ofbeldi. Það er augljóslega lögbrot og ansi hættulegt ef svona tal á að viðgangast á Hugi.is.