Sannleikurinn á bakvið baugsmálið og Illuminati Eins og öll þjóðin ætti að vita var Baugsmálinu mikla vísað frá Héraðsdómi fyrir stuttu. Það var einfaldlega látið hverfa, búmm. En af hverju gerðist þetta? Það var alveg ljóst að Baugsmenn höfðu brotið af sér en samt var ekkert gert í þessu. Ég skal útskýra þetta fyrir ykkur. Fyrst ég er eina manneskjan sem skilur þetta blekkjandi samfélag sem við lifum nú í. Í stuttu máli sagt vísaði Illuminati málinu frá Héraðsdómi. Fyrir þá sem vita ekki hverjir Illuminati eru skal ég útskýra það.

Öll stríð og ringulreið eru plönuð af örfáum mönnum. Þeir hafa kerfisbundið unnið að því að skipta fólki í fylkingar með því að búa til mismunandi pólitískar skoðanarhugmyndir svo þeir geti á endanum skapað ofur sósíalískt ríki þar sem þeir stjórna öllu og við erum þrælar þeirra. Þessir menn eru úr 13 valdamiklum fjölskildum sem stjórna heiminum.

Þeir stjórna líka viðskiptalífinu með harðri hendi. Baugur er eitt af fyrirtækjunum sem eru í eigu þeirra. Jón Ásgeir er strengjaprúða þeirra, eins og Kári Stefánsson sem þeir nota til að njósna um hagi okkar Íslendinga. Og skapa ringulreið til að rugla okkur í ríminu svo við stöndum ekki saman gegn þeim. Davíð Oddson var látinn tákna hið illa í strengjabrúðuleik Illuminati. Hann reis gegn Baugsmönnum en tapaði öllum orustunum (fjölmiðlafrumvarpinu var t.d. vísað frá). En svo kom að því að Dabbi varð þreyttur á því að vera strengjabrúða og þess vegna beyttu Illuminati hann nýrri tækni með rafsegulbylgjum til að gera hann veikann, nær dauðann en lífi. Þeir skipuðu honum svo að hætta sem Forsætisráðherra, eða mútuðu honum í rauninni og létu hann fá hálaunastarf hjá seðlabankanum með því að skilirði að hann héldi kjafti.

Illuminati eru hlynntir hnattvæðingu og sjá Ísland sem smá hindrun í þessum málum. Þar sem við erum svona langt frá öðrum verður ekki eins auðvelt að stjórna okkur í nýju heimskipuninni. Þess vegna láta þeir okkur sækja á önnur lönd viðskiptalega í gegnum strengjabrúður sínar, Baugsfeðgana.

En af hverju voru þá Baugsmenn ákærðir ef Illuminati stjórna ríkisvaldinu hér á landi spyrjið þið líklega. Ég hef að sjálfsögðu svarið við því. Heilabú meðalmannsins er furðu einfallt og með villandi upplýsingaflæði er hægt að skapa þá ranghugmynd í haus hans að allt sé eins og það sýnist. Þetta er gert með því að láta hlutina líta eðlilega út og þar sem það var eðlilegt að Baugur yrði ákærður settu Illuminati þetta leikverk sitt á svið. Einnig gerðu þeir þetta til að vekja athygli á þessum strengjabrúðum sínum í heimspressunni.

Allt sem gerist í samfélaginu okkar er skipulagt af Illuminati, því fyrr sem fólk fer að átta sig á því, því betra. Því hin nýja heimsskipan nálgast. Sameinuð getum við sigrað Illuminati og eytt þessu eytri úr ríkisstjórnum heimsins en því miður er fólk of heimskt til að átta sig á þessu fyrr en það verður og seint.