Björgun mannkyns er í höndum eins manns Jesús Kristur fæddist aftur árið 1951 undir nafninu Steven Seagal. Þegar heimurinn er að mölna undan trúarbragðastríðum og hryðjuverkum er aðeins eitt sem kemur til greina. Sameiningartákn alls heimsins, maður sem hefur þvílíkt náðarvald að fólk tárast við það eitt að líta hann augum. Maður sem er svo fagur og fullkominn að allir líta upp til hans. Steven Seagal hefur beitt náðarvaldi sínu í kvikmyndum og heillað heimsbyggðina upp úr skónum með frábærum leik og miklum persónuleika líkt og Jesú gerði á sínum tíma, bara með öðrum aðferðum.

Heimurinn versnar með hverri mínútu og það er komið nóg af eyturlifjum og óþarfa ofbeldi. Steven Seagal þarf að binda enda á þetta. Hann beitir þörfu ofbeldi, lemur og brýtur hendur þeirra sem níðast á þeim veiku. Hann æfir reyndar stundum sjálfur brögðin sín á eiginkonunni en tilgangurinn helgar meðallið. Hann gerir þetta allt í nafni alheimsfriðar og sameiningu mannkyns.

“I am hoping that I can be known as a great writer and actor some day, rather than a sex symbol.”
-Steven Seagal

Hann er hógværin uppmáluð og gerir sér kannski ekki fullkomlega grein fyrir ábyrgð sinni. Örlög alheimsins hvíla á hans fullkomlega vöxnu herðum.

“bethat as it may I have also been lucky in the sense that I have been able to make environmentally conscientious movies as well as politically conscientious movies. ABOVE THE LAW was a politically conscientious movie. ON DEADLY GROUND was environmentally conscientious so I want to keep making movies like that which are more geared with a certain entertainment value but also bring people forward into contemplation.”
-Steven Seagal

Barsmíðar Oh Great one Grandmaster Sensei Steven Seagal-San Aikido 7th dan KING eru sem fagur hljóðfæraleikur fyrir augun. Hann hefur sameinað mannkyn undir einn hatt með óperuofbeldi sínu á svo mikilfenglegan máta að ég tárast við að hugsa um það.

STEVEN SEAGAL ER FRAMTÍÐIN.

Takk fyrir að lesa greinina mína.