Þetta er ekki fyndið, þetta með íslensku markaðshyggjuna. Það er allt að verða einkavætt. Skólar til dæmis. Sem sagt, ef þú ert einn af þessum sterku “hönum á prikinu”, þá getur barnið þitt farið í fínan skóla. Sauðsvartur almúginn sendir sín bara í næsta hverfisskóla. Það sem verra er. Einkavæðingin í heilbrigðisgeiranum. Ríkið þykist vera að spara. Það er kannski rétt því ekki líður á löngu þar til blanka fólkið hefur ekki efni á læknisþjónustu, tala nú ekki um innlögn á sjúkrahús, og deyr bara drottni sínum heima í kytrunum sínum. Það er auðvitað viss sparnaður í því. Framfarir undanfarinna ára og “góðærið” (sem að vísu fór einhvernveginn framhjá mér) er eins og búmmerang sem er um það bil að skella í hnakkan á íslensku þjóðinni en Davíð segir bara í sínu föðurlega þjóðhátíðarávarpi að allt sé í stakasta, verðbólgan á niðurleið og allt í gúddífíling.
Mér sýnist hinsvegar að uppsagnir séu að bresta á í stórum stíl, atvinnuleysi mun aukast gríðarlega og “slæmæri” í uppsiglingu sem fer sko örugglega ekki fram hjá mér eins og góðærið gerði.
Það er nokkuð síðan að “ blanka ” fólkið á Íslandi hafi ekki efni á læknisþjónustu, s.s. tannlæknisþjónustu.
Fyrrverandi landlæknir benti á það í grein í Mbl. fyrir nokkrum árum síðan.
Hvað skólana varðar í einkavæðingu, held ég að þar hafi verið búið svo um hnútana með markaðsgirðingum, að enginn þurfi að hafa áhyggjur af.
Ef sömu markaðsgirðingar væri að finna varðandi hlutabréfamarkað og samkeppnisumhverfið þar, s.s innherjaviðskipti, þá þyrftum við ekki að vera vitni að opinberum deilum hluthafa í félagi skráðu á verðbréfamarkaði, um þjónustusamning við ríkið í þágu aldraðra.
Mér skilst að ég sé þáttakandi í stórútgerð með greiðslu í lífeyrissjóði gegnum tíð og tíma, og ég taki þar með þátt í “ góðærinu ” .
Það hefur hins vegar ekki komið til mín í heimsókn frekar en þín.
0