Þetta sniðuga bréf fann ég á einni heimasíðu og eitthvað verður maður að gera sambandi við bensínverð hér á landi.
——————————————————————-

Lækkum bensínið sjálf. - Það má reyna!!



Jæja góðir landsmenn þá er komið að því að sýna hversu megnug okkar
litla þjóð getur verið þegar hún tekur sig til.
Nú er svo komið fyrir að við erum farinn að borga meirihlutann af
okkar launum í ELDSNEYTIS kostnað sem að er
náttúrulega alveg óviðunandi ástand EN nú getum við sýnt hvað í okkur býr með því að hreinlega KNÝJA fram
lækkun, við þurfum ekki ég endurtek EKKI
að hætta að kaupa bensín og/eða olíu heldur hreinlega ÚTILOKA bara
tvö af þessum þremur olíufélögum sem að við
neyðumst til að versla af hér í landi.
Þannig að frá og með þjóðhátíðardegi okkar þann 17 júni þá hættum
við að versla við þessi 2 stóru olíufélög
sem að eru OLÍUFÉLAGIÐ/ESSO og SKELJUNGUR/SHELL.Þetta kemur til með
að neyða þessi fyrirtæki til að lækka
bensínverðið því að við vitum jú að ekkert fyrirtæki getur gengið
án innkomu,og við hættum þessum aðgerðum ekki fyrr en
að þeir hafa lækkað bensínlítran af 95 oktana bensíni NIÐUR fyrir
95 krónur.
Kæra þjóð við verðum að gera eitthvað í málunum og við getum það
vel ef við sýnum samstöðu og þú sem að ert að lesa þetta bréf núna, áframsentu þetta til allra sem þú þekkir eða prentaðu
þetta út og dreifðu þessu á þínum vinnustað eða gerðu bara allt sem í þínu valdi stendur til að sem flestir taki þátt í
þessum aðgerðum.

Munið bara að þegar þið keyrið framhjá næstu ESSO eða SHELL stöð að
það er OLÍS eða ÓDÝRT BENSÍN einhversstaðar nálægt.
Ekki hugsa þannig er þú lest þetta bréf að þetta sé ekki glæta og
þetta muni aldrei ganga því að þetta gengur upp ef að þú
kæri íslendingur vilt það nógu mikið.

Það skal tekið fram að þetta bréf kemur ekki frá OLÍS mönnum því að
þeir neyðast líka til að lækka þegar þar að kemur,þeir urðu einfaldlega fyrir valinu með því að kasta upp íslensku KRÓNUNNI.


Með von um góða samstöðu.

ÍSLENSKUR RÍKISBORGARI.