Já núna er ég kominn með leið á þessu skítlega blaði.

Ég geri mér fulla grein fyrir því að þeir reyna að gera hvað þeir geta til að selja þetta sorp og hefur tekist vel. En þeir hafa ákveðið að setja sér enginn mörk og leyfa sér ekki að ljúga til um “fórnarlömb” sín.

Nýjasta dæmið er viðtal í helgarblaðinu(?) við Ragnhildi Steinunni, fyrrv. fegurðardrottningu. Áður en þetta viðtal var tekið var henni lofað því að viðtalið yrði EKKI forsíðuviðtal og engar myndir af henni í bíkiní úr fegurðarkeppnum væru notaðar.

Hvað haldiðið að blaðamaður DV geri? Mikið rétt. Hann setur fréttina á forsíðuna með mynd af henni léttklæddri, þó að það sé nú ekkert agalegt að sjá, undir fyrirsögninni “Missti móður sína og býr hjá fötluðum föður sínum”. Þetta er hrein og bein lygi! Faðir hennar er alls ekkert fatlaður.

Þetta er bara eitt dæmi um fréttamennsku DV. Þeir gera allt í sínu valdi til að selja blaðið og nota óþverraaðferðir sem eru ekki mönnum sæmandi. Ég held að flestir í þjóðfélaginu þekki einhvern sem hefur einhverja reynslu af skrifum blaðsins.

Síðan eru þeir líka frægir fyrir að hreinlega leggja ákveðin fyrirtæki og fólk í “einelti”. Það er auðvitað minnimáttakennd af bestu gerð eins og Gunnar Smári, útgefandi DV, er og var frægur fyrir á vikublöðum sínum.

Ég legg til að fólk byrji að sniðganga blaðið og hætti að kaupa þennan sora!