Nýlega sá ég þátt af 60 minutes þar var sagt frá aðferðum CIA til að fá upplýsingar upp úr grunuðum hryðjuverkamönnum, í stuttu máli ferðast þeir um heimin í þotu dullbúnir og grímuklæddir handtaka þeir þessa grunuðu hryðjuverkamenn skera af þeim fötinn berja þá klæð þá í samfesting og setja poka á hausinn á þeim fljúga svo með þá til landa eins og Egyptalands,Uzbekistan og Afghanistan þar sem þeir fara með þá í fangelsi þar sem pyntingar eru notaðar til yfirheyrslu.


Þessi aðferð var fyrst notuð á tímun Clinton stjórnarinar en notun hennar hefur margfaldast
eftir 9/11.



Það hefur alloft komið fyrir að saklaust fólk hefur verið tekið með þessum hátt og til dæmis voru tveir Egyptar sem búsettir voru í Svíþjóð
handteknir og sendir aftur til Egyptalands í fangelsi sem alræmt er fyrir pyntingar annar þeirra var sakaður um að vera skæruliði og fékk 25 ára fangelsis vist en hinn slapp út eftir 2 ár í pyntingum.Það var líka múslimi sem búsettur var í Þýskalandi handtekinn pyntaður þangað til það kom í ljós að hann væri saklaus þá var hann skilinn eftir út á veg á Albaníu.



Bara að koma þessu á framfæri.