Stígamót hafa hjálpað mér mikið í gegnum tíðina því eins og kannski þið vitið af fyrri greinum mínum hefur mér bæði verið nauðgað og ég misnotuð,
Stígamótahúsið er niðri í bæ, fyrir ofan Fríðu frænka, þetta er mjög kósý þarna og þægilegt, allir voða góðir við mann, maður er ekki neiddur til að segja neitt sem maður vill ekki, ekki lýsa því sem gerðist í smáatriðum frekar en maður vill, þar getur maður fengið bæklinga setta saman af fólki sem veit hvað þetta er. maður getur fengið hjálp við að kæra, hægt að fá ýmiskonar upplýsingar. Ef þú hefur einhverntíman lent í svona og ekkert gert í því þá vil ég bara benda þér á þetta, það eru voða skemmtilegar og góðar konur þarna sem sjálfar hafa lent í þessu, ekki hika, ekki segja að þetta hafi verið þér að kenna, það er það aldrei, mundu hvern þú átt að vera reið við og vertu reið við hann, ekki þig, og mundu að það er betra að tala og gráta en muna þetta alltaf, hugsa stanslaust um þetta og líða illa! Stígamót hjálpar!!
Just ask yourself: WWCD!