Góðan daginn.
Ég er ungur piltur og óreyndur í hinum ýmsu leiðum fordóma.
Ég hef verið að kljást við það vandamál uppá síðkastið að vera ekki inní nýjustu fordóma tískubylgjunum og er að leita mér að meistara sem getur kennt mér allt sem ég þarf að vita til að byrja að hata hina og þessa hópa í samfélaginu okkar.

Nokkur vandamál sem ég er að kljást við.
*Ég er ekki alveg að hata homma nógu mikið. Finnst þeir mjög skemmtilegir upp til hópa og ágætis tilbreyting í þjóðfélaginu okkar.
*Skil ekki af hverju fólk lítur á svertingja (negra?) sem þjófa. Vill einhver kenna mér trixið til að koma því inní hausinn á mér?
*Feitar stelpur séu sorglegar og slæmar í rúminu. Þetta er eitthvað sem ég er alveg að ná tökum á og hef uppá síðkastið getað litið á þær sem sorglegar mannverur.
*Láglaunafólk. Næ ekki að hata þennan hóp. Þetta er eina fólkið sem virkilega gerir eitthvað í landinu en er samt að fá skítalaun. Getur einhver kennt mér að líta niður á þau?
*Nördar, fyrirlitning til þeirra er soldið erfið. Þeir hittast og tala um Star Trek sem er ósköp saklaust. Þeir eru aldrei fyrir mér eða gera mér neitt illt. Síðan hanga þeir í tölvunni öllum stundum, en hvað er ég að gera í augnablikinu?

Allaveganna ef einhver getur tekið mig undir sinn væng og kennt mér að verða alvöru rasisti, karlremba og alvöru hálfviti, endilega hafa samband.
Líka ef einhver getur hjálpað mér með einhver af atriðunum hér fyrir ofan, endiilega svara með góðum ráðum.
Í von um að við hötumst öll á endanum.
Pís át.

Engel