Smá skemmtileg saga,
Leikarar og söngvarar úr Söngleiknum Hárinu sýndu í gærkvöldi fyrir fullu húsi í Austurbæ að vanda og var mikil stemning eftir sýninguna, svo mikil stemning að hópurinn ákvað að skella sér á barinn eftir sýninguna. Inni á 101 hótelbarnum vildi svo skemmtilega til að sjáfur Harrison Ford sat á næsta borði við Hár hópinn og dreyti á rauðvíni. Rúnar Freyr leikstjóri vatt sér upp að stjörnunni og bauð honum að tylla sér við borðið með hinum leikurunum, sem hann og gerði. Eftir hálftíma spjall, smá meira vín og skemmtilegar sögur frá Hollywood var Mr.Ford að sjálfsögðu boðið á næstu sýningu á Hárinu, sem hann þáði með þökkum. Það lítur sem sagt út fyrir að HARRISON FORD ÆTLI AÐ MÆTA Á FYRSTU SÝNINGARNAR Á HÁRINU Í OKTÓBER!!!!