Nú var verið að sýkna karlmann - í héraðsdómi Vestfjarða- fyrir misnotkun á barni. Hann viðurkenndi öll ákæruatriði nema eitt. Hafði semsagt misnotað barnungan frænda sinn frá 1980-86 og málið sagt fyrnt. Ég er nú ekkert viss um að í augum allra hlutaðeigandi sé málið fyrnt. Þetta finnst mér nú allt saman pínku spúggí svo ekki sé meira sagt, kommon, hann viðurkenndi alltsaman.
EN….. ég segi og skrifa aftur EN, lögin sem farið var eftir þarna fyrir vestan eru þannig að það er harðari dómur ef misnotkun er gegn barni af gagnstæðu kyni!!! Sem sagt, ekki eins alvarlegt að nauðga litlum pilt eins og lítilli stúlku?
Hvurslags eiginlega fokkíng bananalýðveldi er þetta sem við búum í?
Finnst ykkur þetta allt í orden? Ekki mér.