Hér er ég enn og aftur kominn til að setja út á þær reglur sem eru settar fyrir strippstaðina hér á landi, ég hélt í alvöru að við byggjum í landi sem væri ekki fullt af moldbúum og heimskingjum, ég hef greinilega rangt fyrir mér.

ASÍ hefur nú gefið út þá yfirlýsingu að þeir ætli ekki að gefa út fleirri leyfi á stelpur frá austur evrópu, þetta réttlæta þeir með því að þeir viti ekki hvað þessar stelpur geri inn á þessum stöðum,
nú þær dansa.

Ekki nóg með það að þeir séu búnir að stoppa leyfin heldur ætla þeir að setja rannsóknarnefnd í málið(að vita hvað þær gera), ef þeir eru hræddir við að þær stundi vændi ættu þeir að leita annað, ef þessar stelpur eru stoppaðar af leita eigendur staðana bara til hollands og bretlands, holland: vændi er löglegt í Amsterdam (ekki gáfulegt)og stelpur sem þeir fá frá englandi eru úr lægsta þjóðarklassa þar í landi, s.s mellur, eiturlyfjaneytendur og þjófar (enn ógáfulegra).

Ég er svo hissa, þeir velja að hleypa frekar mellum og dópistum inn í landið vegna þess að þær eru í þessu sjengen(eða hvað sem það heitir)sambandi, frekar en að fá menntaðar(oft) konur eða húsmæður(líka mjög algengt) sem geta ekki vegna efnahags þeirra þjóða framfleytt sér og börnum sínum.

Ég á ekki til orð.

Virðingafyllst
Gyzmo