Enn og aftur.. Enn og aftur.. Kynferðisbrot. Er það bara ég eða er eitt svona mál í hverri viku? Og alltaf er það sama sagan. Lítil refsing. En núna finnst mér þetta hafa farið yfir strikið, og langt yfir.

“Heyrnarlaus maður níddist á þremur dætrum sínum og fékk samúð dómara.. var misnotaður í Heyrnleysingjaskólanum.”

Fyrir þá sem kaupa DV er þetta kannski kunnuglegt, enda er þetta fyrirsögnin á forsíðu DV. Svo kemur smá klausa undir.

“Dómur Héraðsdóms Reykjaness í gær yfir mál- og heyrnarlausum manni sem sakaður var um kynferðisbrot gegn þreumur ungum dætrum sínum er um margt óvenjulegur. Þótt alvarleg brot gegn tveimur dætranna séu talin sönnuð hlýtur maðurinn aðeins þriggja mánaða dóm, haldi hann skilorði næstu fimm ár. Mjög ströng skilyrði eru að vísu sett varðandi skilorðið. Dómurinn telur að þótt maðurinn eigi sér ekki málsbætur í hefðbundnum skilningi megi við úrlausn málsins líta til hryllilegrar reynslu hans á æskuárum.”

Þegar ég las fyrirsögnina hugsaði ég með mér:,,Jájá.. hann hlýtur að hafa fengið nokkuð háan dóm.“ En það var greinilega rangt af mér að búast við því. 3 mánuðir.. Það er dómurinn sem hann fær. 3 MÁNUÐIR??! Átti maðurinn afmæli eða hvað? Þetta jafnast bara á við gjöf. Svo er sagt að það séu sett ströng skilyrði í sambandi við skilorðið..
Svona eru hljóða þessi ”ströngu skilyrði“:,,..að ákærði sæti á skilorðstímanum eftirliti og umsjón Fangelsismálastofnunar ríkisins, neyti á sama tíma hvorki áfengis né ólöglegra vímuefna og gangist undir dvöl á meðferðarheimili í allt að 6 mánuði.”

Tjahh.. veit ekki með aðra hérna en mér finnst þetta ekki strangt.. Bara þarf að fara í meðferð, passa sig á að gera ekki eitthvað sem er bannað og hvorki drekka né vera í dópinu. Þetta geri ég bara á hverjum degi, fyrir utan meðferðina. Ég hvorki drekk né neyti vímuefna og ég passa mig á að gera ekki eitthvað sem gæti komið mér í fangelsi. How hard can it be?

Og þeir segja að hann fái svona vægan dóm af því að hann sjálfur átti hræðilega æsku. Jæja.. Hann lenti í misnotkun sjálfur, hann veit hvað það er hryllilegt, og samt gerir hann það við sínar eigin dætur?! Fyrst hann lenti í þessu sjálfur, og ég trúi því alveg að hann gerði það, ætti hann þá ekki að fatta það að gera þetta ekki?
Mér finnst þetta bara hræðilegt.. Ég veit eiginlega ekki hvort er verra, það sem maðurinn gerði eða dómurinn sem hann fékk. Þetta er glæpur gegn þjóðinni að láta þennan mann bara vera inni í 3 mánuði.

Takk fyrir mig.
go on just say it.. you need me like a bad habit.