Forseti Íslands
Virðulegi Forseti Íslands

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson.

Við undirrituð krefumst þess að þú í krafti embættist þíns neitir að staðfesta lög sem Davíð Oddsson er búinn að seja fram á Alþingi.

Það er hverjum manni ljóst að þessi lög eru sett fram til þess eins að klekkja á einu stærsta fyrirtæki þessa lands. Og virðist vera að þau eru sett fram vegna andúðar Davíðs Oddssonar á því fyrirtæki.

Það kemur skýrt fram, bæði í óformlegri kostningu í þættinum Ísland í dag þann 26 Apríl síðastliðinn og einnig í fréttablaðinu í dag þann 27 Apríl að stór hluti þjóðarinnar er á móti þessum lögum.

Því er það þín ábyrgð Herra Ólafur Ragnar að framfylgja kröfum þjóðarinnar og neita að staðfesta þessi lög, eða ólög eins og hægt er að kalla þau.


Skráið ykkur á þessari síðu http://www.petitiononline.com/3914/petition.html